Fotbolti.net
29.04.14 - 10:20
Elvar Geir Magnússon
Í samstarfi við styrktaraðila

Úrvalslið vikunnar í enska - Chelsea sér um vörnina

Cesar Azpilicueta er meðal varnarmanna.

Cesar Azpilicueta er meðal varnarmanna.

Canon

Mynd: Getty Images

Chelsea náði að blása meiri spennu í titilbaráttu ensku úrvalsdeildarinnar með því að sækja stigin þrjú á Anfield í leik sem hefur verið talað mikið um á kaffistofum heimsins.

Það er vel við hæfi að Chelsea eigi þrjá af fjórum varnarmönnum í liði vikunnar en liðið er sótt frá félögum okkar á Goal.com að þessu sinni.


Við hefjum leik aftast og þar er John Ruddy, markvörður Norwich, þrátt fyrir að hafa fengið á sig fjögur mörk gegn Manchester United. Ruddy átti nokkrar klassamarkvörslur og kom í veg fyrir að niðurlægingin yrði meiri.

Cesar Azpilicueta, Ashley Cole og Branislav Ivanovic eru allir í vörninni en þessir Chelsea-leikmenn voru eins og klettar á sunnudag. Younes Kaboul átti flottan leik í 1-0 sigri Tottenham gegn Sunderland og veitir bláliðunum félagsskap í öftustu línu.

Aaron Ramsey er fulltrúi Arsenal í liðinu en Arsenal vann 3-0 sigur gegn Newcastle í lokaleik umferðarinnar. Með honum á miðjunni er Jonjo Shelvey hjá Swansea sem var frábær gegn Aston Villa og skoraði eitt af mörkum tímabilsins.

Steven Davis hjá Southampton átti magnaðan leik gegn Everton og Shinji Kagawa sýndi sparihliðarnar í fyrsta leik Ryan Giggs sem knattspyrnustjóri Manchester United.

Wayne Rooney er í fremstu víglínu ásamt Connor Wickham hjá Sunderland sem er gjörsamlega óstöðvandi um þessar mundir.

Sjá einnig:
Fyrri úrvalslið í enska boltanum
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.