Fotbolti.net
17.03.14 - 07:00
Alexander Freyr Tamimi
Í samstarfi við styrktaraðila

Úrvalslið vikunnar í enska - Arsenal á þrjá

Gerrard er í liðinu.

Gerrard er í liðinu.

Canon

Mynd: Getty Images

Stórskemmtilegri umferð í ensku úrvalsdeildinni lauk með frábærum ofur-sunnudegi í gær.

Líkt og vanalega valdi Garth Crooks hjá BBC lið helgarinnar og birtum við það hér.

Arsenal á þrjá fulltrúa í liðinu úr 1-0 sigrinum gegn Tottenham. Þeir Laurent Koscielny, Mikel Arteta og Tomas Rosicky eru í liðinu.

Liverpool á tvo fulltrúa úr 3-0 sigrinum gegn Manchester United. Steven Gerrard er að sjálfsögðu í liðinu en einnig John Flanagan.

Gaman er að segja frá því að Martin Demichelis, varnarmaður Manchester City, kemst í liðið þessa vikuna en hann hefur verið afar harðlega gagnrýndur undanfarið.

Hér að neðan má sjá liðið í heild sinni.

Markvörður - David Marshall (Cardiff)
Marshall átti frábæran leik í markinu gegn Everton um helgina og er í liðinu þrátt fyrir 2-1 tap Cardiff. Marshall átti margar frábærar markvörslur og hefði tapið verið mun stærra án hans.

Varnarmaður - Jon Flanagan (Liverpool)
Flanagan var öflugur í 3-0 sigrinum gegn Manchester United. Hann virkaði aldrei stressaður þrátt fyrir að þetta væri mjög stór leikur. United lét meira að segja Adnan Januzaj skipta um kant því Flanagan var að halda honum vel í skefjum.

Varnarmaður - Laurent Koscielny (Arsenal)
Frakkinn hefur verið frábær í vörn Arsenal á tímabilinu og var það sannarlega í 1-0 sigrinum gegn Tottenham um helgina. Stöðvaði oft sóknarmenn Lundúnarliðsins og bjargaði á marklínu.

Varnarmaður - Martin Demichelis (Man City)
Argentínumaðurinn hefur fengið slæma umfjöllun, en var mjög góður í 2-0 sigrinum gegn Hull eftir að Vincent Kompany var sendur af velli. Lét ljós sitt skína í fjarveru fyrirliðans og stýrði vörninni mjög vel.

Varnarmaður - Seamus Coleman (Everton)
Smá heppnisstimpill yfir sigurmarki hans gegn Cardiff. Hann hefur verið öflugur sóknarlega fyrir Everton og var á réttum stað á réttum tíma til að tryggja liðinu stigin þrjú.

Miðjumaður - Fabian Delph (Aston Villa)
Aston Villa náði verðskuldaðri forystu gegn Chelsea með ótrúlegu marki Fabian Delph. Var orkumikill og duglegur og átti skilið að skora sigurmarkið.

Miðjumaður - Steven Gerrard (Liverpool)
Skoraði tvö mörk úr vítaspyrnum og hefði getað sett þrennu úr vítaspyrnunni sem hann brenndi af í 3-0 sigrinum gegn Livrpool. En var frábær, duglegur á miðjunni. Toppleikmaður, hvort sem Sir Alex Ferguson finnst það eða ekki.

Miðjumaður - David Silva (Man City)
David Silva var ekki búinn að skora síðan í desember, sem er magnað fyrir svona góðan leikmann. En hann setti eitt flott mark gegn Hull og átti góðan leik.

Miðjumaður - Mikel Arteta (Arsenal)
Í leiknum gegn Tottenham var Arteta leiðtogi. Arsene Wenger getur treyst á hann hvenær sem er og hann er gríðarlega mikilvægur hlekkur í liði Arsenal.

Miðjumaður - Tomas Rosicky (Arsenal)
Rosicky skoraði frábært sigurmark Arsenal strax í byrjun leiksins gegn Tottenham. Ótrúlega fallegt mark og hann sinnti svo sínu hlutverki vel, bæði sóknarlega og varnarlega, það sem eftir lifði leiks.

Framherji - Jay Rodriguez (Southampton)
Hann skoraði eitt mark í 4-2 sigrinum gegn Norwich, lagði upp annað og þrumaði boltanum í slána. Ótrúlegt hlaup í fyrsta marki Morgan Schneiderlin.
Rosicky fær sæti í liðinu eftir sigurmarkið gegn Spurs.

Rosicky fær sæti í liðinu eftir sigurmarkið gegn Spurs.

Canon

Mynd: Getty Images

David Marshall er markvörður liðsins.

David Marshall er markvörður liðsins.

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.