Fotbolti.net
14.04.14 - 10:35
Magnús Már Einarsson
Í samstarfi við styrktaraðila

Úrvalslið vikunnar í enska - Fjórir Liverpool menn

Jon Flanagan er í liðinu.

Jon Flanagan er í liðinu.

Canon

Mynd: Getty Images

Garth Crooks hjá BBC hefur valið lið helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni.

Garth var hrifinn af Liverpool liðinu í 3-2 sigrinum á Manchester City en fjórir leikmenn frá toppliðinu eru í liði vikunnar að þessu sinni.


Markvörður - David Marshall (Cardiff)
Julian Speroni og David Stockdale stóðu sig báðir vel um helgina en Marshall fær markvarðarstöðuna eftir að hafa haldið hreinu gegn Southampton.

Varnarmaður - Seamus Coleman (Everton)
Coleman var eins og klettur í vörninni í útisigri Everton á Sunderland.

Varnarmaður - John Stones (Everton)
Þessi 19 ára gamli leikmaður leysti Phil Jagielka frábærlega af hólmi um helgina.

Varnarmaður - Juan Cala (Cardiff)
Cala var frábær í vörn Cardiff gegn Southampton.

Varnarmaður - Jon Flanagan (Liverpool)
Flanagan var traustur í sigri Liverpool í toppbaráttuslagnum gegn Manchester City.

Miðjumaður - Steven Gerrard (Liverpool)
Gerrard náði að drífa sína menn áfram gegn City.

Miðjumaður - Jason Puncheon (Crystal Palace)
Puncheon hefur verið gulls ígildi fyrir Crystal Palace í vetur og hann var frábær í sigrinum á Aston Villa.

Miðjumaður - Philippe Coutinho (Liverpool)
Coutinho kórónaði góðan leik sinn gegn Manchester City með sigurmarki.

Framherji - Raheem Sterling (Liverpool)
Sterling var mjög beittur gegn Manchester City og skoraði fyrsta markið.

Framherji - Demba Ba (Chelsea)
Ba skoraði markið mikilvæga fyrir Chelsea gegn Swansea.

Framherji - Hugo Rodallega (Fulham)
Rodallega skoraði sigurmarkið í gríðarlega mikilvægum leik gegn Norwich.

Sjá einnig:
Fyrri úrvalslið í enska boltanum
Demba Ba er frammi.

Demba Ba er frammi.

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.