Fotbolti.net
04.11.14 - 12:00
Elvar Geir Magnússon
Í samstarfi við styrktaraðila

Úrvalslið vikunnar í enska - Þrír frá Arsenal

Alexis Sanchez er sjóðheitur.

Alexis Sanchez er sjóðheitur.

Canon

Mynd: Getty Images

Allra augu voru á Manchester liðna helgi þar sem City og United áttust við. Það var ekki boðið upp á markaveislu en þó dramatík þar sem Chris Smalling lét reka sig af velli á heimskulegan hátt áður en City tryggði sér 1-0 sigur.
Chelsea hélt áfram á beinu brautinni með 2-1 sigri gegn QPR og Southampton sem er í öðru sæti vann 1-0 sigur gegn Hull City.

Hér að neðan má sjá úrvalslið vikunnar en það var Sports Mole sem sá um valið fyrir okkur að þessu sinni.



Þrátt fyrir að hafa fengið á sig þrjú mörk þegar Burnley tapaði 3-0 gegn Arsenal var Tom Heaton afskaplega góður í markinu og varði hvað eftir annað.

Þrír leikmenn Arsenal komast í liðið. Calum Chambers var í hægri bakverðinum og eyddi stærstum hluta leiksins á vallarhelmingi Burnley. Kieran Gibbs var einnig öflugur en besti maður vallarins var Alexis Sanchez sem er heitasti leikmaður deildarinnar um þessar mundir.

Ashley Williams varnarmaður Swansea City var helsta ástæða þess að Everton tókst ekki að skora gegn velska liðinu á Goodison Park þar sem leikar enduðu 0-0.

Toby Alderweireld átti glimrandi leik fyrir Southampton sem hélt marki sínu hreinu í úrvalsdeildinni í sjötta sinn á tímabilinu. Victor Wanyama skoraði sigurmarkið í leiknum snemma leiks.

Jonathan Walters hjá Stoke City var hlaupandi allar 90 mínúturnar og lagði upp mark þegar liðið gerði 2-2 jafntefli við West Ham. Moussa Sissoko í Newcastle United er í liðinu en hann hóf ófáar sóknirnar þegar liðið vann 1-0 sigr gegn Liverpool.

Í sóknarlínunni eru Steven Fletcher í Sunderland og Sergio Aguero í Manchester City. Sunderland vann 3-1 útisigur gegn Crystal Palace og gaf heimamönnum aldrei frið en Aguero skoraði sigurmarkið í Manchester-slagnum.

Sjá einnig:
Fyrri úrvalslið í enska boltanum
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.