Fotbolti.net
08.04.14 - 08:30
Elvar Geir Magnússon
Í samstarfi við styrktaraðila

Úrvalslið vikunnar í enska - Everton á þrjá menn

Juan Mata átti stjörnuleik á laugardag.

Juan Mata átti stjörnuleik á laugardag.

Canon

Mynd: Getty Images

Þá er komið að Domino\'s liðinu sem er að þessu sinni fengið frá Betfair. Það var mikil samkeppni um stöður í liðinu en aðeins ellefu sem fá pizzuveislur.

Stillt er upp í 4-2-3-1 þar sem Everton á að sjálfsögðu nokkra fulltrúa eftir frábæran sigur gegn Arsenal.


Markvörður - Tim Howard (Everton)
Everton spilaði frábærlega gegn Arsenal og Howard var vel á verði. Hefur verið frábær á tímabilinu.

Hægri bakvörður - Branislav Ivanovic (Chelsea)
Ivanovic hefur reglulega verið í liði vikunnar.

Miðvörður - Jonas Olsson (West Brom)
West Brom er farið að sýna smá lífsmark og Olsson var sem klettur um liðna helgi.

Miðvörður - Martin Skrtel (Liverpool)
Það er ekki efst á óskalista margra að mæta Andy Carroll í toppstandi. En Skrtel gerði það listilega vel á sunnudag.

Vinstri bakvörður - Kieran Richardson (Fulham)
Það er ekki oft sem varnarmaður úr Fulham kemst í úrvalsliðið, og ekki að ástæðulausu!

Miðjumaður - James McCarthy (Everton)
Mörgum fannst skrítið þegar Roberto Martinez keypti McCarthy frá Wigan. En engum finnst það skrítið í dag.

Miðjumaður - Mile Jedinak (Crystal Palace)
Steven Gerrard hefði getað verið á miðjunni enda frábær gegn West Ham en Jedinak nær naumlega að koma sér í liðið. Hann var magnaður í sigri Palace gegn Cardiff.

Sóknarmiðjumaður - Jason Puncheon (Crystal Palace)
Puncheon var lykilmaður í spilamennsku Palace gegn Cardiff.

Sóknarmiðjumaður - Juan Mata (Manchester United)
Mata er farinn að finna fjölina hjá Manchester United og lék á als oddi gegn Newcastle á laugardag. Stuðningsmenn United gráta það að hafa Mata ekki til taks gegn Bayern München!

Sóknarmiðjumaður - Christian Eriksen (Tottenham)
Því miður komast bara ellefu í liðið svo Mohamed Salah hjá Chelsea þarf að sætta sig við að vera á bekknum. Christian Eriksen átti frábæran leik fyrir Tottenham í gærkvöldi og tók sætið af Salah!

Sóknarmaður - Romelu Lukaku (Everton)
Var í hörkustuði gegn Arsenal. Vinnusamur og kraftmikill.

Sjá einnig:
Fyrri úrvalslið í enska boltanum
Lukaku er í fremstu víglínu.

Lukaku er í fremstu víglínu.

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.