Fotbolti.net
28.10.14 - 12:05
Elvar Geir Magnússon
Í samstarfi við styrktaraðila

Úrvalslið vikunnar í enska - Fellaini og Sanchez í liðinu

Marouane Fellaini.

Marouane Fellaini.

Canon

Mynd: Getty Images

Chelsea og Manchester United gerðu jafntefli í stórleik helgarinnar á Englandi, Arsenal fékk tvö mörk á silfurfati gegn Sunderland, Manchester City tapaði öðrum leik sínum á tímabilinu og Southampton sigldi upp í annað sætið. Hér að neðan má sjá úrvalslið vikunnar á Goal.com.


Thibaut Courtois var mjög góður í 1-1 jafntefli Chelsea gegn Manchester United. Belginn varði oft á tíðum ansi vel. Hann fær félagsskap í liðinu frá Nemanja Matic sem enn og aftur átti góðan leik á miðju bláliða.

Rafael, hægri bakvörður United, er í liðinu og barðist hetjulega gegn Chelsea. Honum á ekki að vera kennt um markið frá Didier Drogba þar sem hann átti aldrei möguleika gegn mun hávaxnari leikmanni.

Marouane Fellaini er á miðjunni en hann hélt Cesc Fabregas niðri í leiknum og átti einn sinn allra besta leik fyrir United.

Varnarmaðurinn Steven Taylor í Newcastle er í liðinu eftir 2-1 sigur gegn Tottenham og Brede Hangeland skoraði og átti frábæran leik fyrir Crystal Palace gegn West Brom.

Alex Song átti góðan leik á miðju West Ham og Sadio Mane skoraði sigurmark Southampton gegn Stoke.

Í þriggja manna sóknarlínu má að sjálfsögðu finna Alexis Sanchez sem skoraði bæði mörkin á Ljósvangi þar sem Arsenal vann 2-0 sigur gegn Sunderland. Wilfred Bony skoraði tvö mörk fyrir Swansea gegn Leicester og Samuel Eto\'o er ekki dauður úr öllum æðum og átti frábæran leik fyrir Everton á Turf Moor þar sem hann skoraði tvívegis.

Sjá einnig:
Fyrri úrvalslið í enska boltanum
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.