Fotbolti.net
06.10.14 - 10:30
Elvar Geir Magnússon
Í samstarfi við styrktaraðila

Úrvalslið vikunnar í enska - Tveir frá Man Utd

Angel Di Maria í leiknum gegn Everton.

Angel Di Maria í leiknum gegn Everton.

Canon

Mynd: Getty Images

Chelsea trónir örugglega á toppi ensku úrvaldsdeildarinnar eftir góðan sigur gegn Arsenal um helgina. Manchester City þurfti að hafa fyrir því að leggja Aston Villa, Liverpool komst aftur á sigurbraut og Mauricio Pochettino stýrði Tottenham til sigurs gegn Southampton.

Hér að neðan má sjá úrvalslið vikunnar í enska en að þessu sinni leituðum við til Garth Crooks, sérfræðings BBC. Hann valdi tvo leikmenn sem stóðu upp úr þegar Manchester United vann 2-1 sigur gegn Everton.


David de Gea er í markinu eftir hetjulega frammistöðu í sigri United. Spánverjinn vann stigin þrjú fyrir Rauðu djöflanna. Í blálok fyrri hálfleiks varði hann vítaspyrnu og í uppbótartíma leiksins átti hann tvær stórbrotnar vörslur.

Cesar Azpilicueta og Gary Cahill voru frábærir í vörn Chelsea. Vincent Kompany bankaði á dyr úrvalsliðsins en liðsfélagi hans hjá City, Eliaquim Mangala, tók sætið í þriggja manna vörn.

Cesc Fabregas heldur áfram að sýna gæði sín með Chelsea en það hlýtur að hafa verið sársaukafullt fyrir stuðningsmenn Arsenal að sjá hann í bláa búningnum um helgina. Angel Di Maria skoraði og lagði upp í sigri United og er kominn í uppáhald stuðningsmanna á Old Trafford.

Þá er Jordan Henderson á miðjunni en hann fékk verðskuldað hrós eftir sigur Liverpool á West Brom. Loksins er Yaya Toure farinn að vera líkur sjálfum sér en hann skoraði frábært mark fyrir City.

Í sóknarlínunni er svo Adam Lallana hjá Liverpool sem skoraði um helgina. Loksins loksins! Lallana hefur ekki sýnt mikið hjá Liverpool en kannski er þetta merki um það sem koma skal. Sergio Aguero var síógnandi hjá City og Steven Fletcher skoraði og bjó til mark fyrir Sunderland gegn Stoke.

Sjá einnig:
Fyrri úrvalslið í enska boltanum
Cesar Azpilicueta.

Cesar Azpilicueta.

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.