Fotbolti.net
12.05.14 - 10:15
Elvar Geir Magnússon
Í samstarfi við styrktaraðila

Úrvalslið vikunnar í enska - Lokalið tímabilsins

Aaron Ramsey og Carl Jenkinson.

Aaron Ramsey og Carl Jenkinson.

Canon

Mynd: Getty Images

Leikmenn Manchester City voru krýndir Englandsmeistarar þegar lokaumferðin fór fram um helgina. Hér að neðan má sjá úrvalslið vikunnar.

Varamarkvörðurinn Lukasz Fabianski spilaði hjá Arsenal og er í rammanum í úrvalsliðinu.
Nathaniel Clyne og Bacary Sagna voru flottir í vörninni en Cesar Azpilicueta fær þó sætið. Í hjarta varnarinnar eru Dejan Lovren og Vincent Kompany en sá síðarnefndi brosti í hring eftir að City innsiglaði meistaratitilinn.

Það var sérstakur dagur fyrir Carl Jenkinson sem skoraði sitt fyrsta mark fyrir Arsenal. Á þriggja manna miðjunni er Aaron Ramsey og spyr maður sig hvar Arsenal hefði endað hefði hann haldist heill allt tímabilið?

Í liðinu er einnig James McCarthy og Steven Gerrard sem náði að snúa leiknum við Newcastle við með tveimur stoðsendingum úr aukaspyrnum.

Í sókninni eru Dwight Gayle sem er á eldi um þessar mundir og skoraði tvö mörk gegn Fulham. Romelu Lukaku hjálpaði Everton að vinna Hull og Emmanuel Adebayor var kraftmikill í 3-0 sigri Tottenham gegn Aston Villa.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.