Fotbolti.net
24.03.14 - 10:10
Magnús Már Einarsson
Í samstarfi við styrktaraðila

Úrvalslið vikunnar í enska - Liverpool á þrjá menn

Skrtel og Suarez eru í liðinu.

Skrtel og Suarez eru í liðinu.

Canon

Mynd: Getty Images

42 mörk voru skoruð í ensku úrvalsdeildinni um helgina og úrvalsliðið hjá Garth Crooks á BBC er ansi sókndjarft að þessu sinni.

Liverpool á flesta fulltrúa eftir 6-3 útisigurinn á Cardiff. Þrír Liverpool menn eru í liðinu en Chelsea á tvo menn eftir 6-0 burstið gegn Arsenal.


Markvörður - John Ruddy (Norwich)
Ruddy var einn af fáum markvörðum sem fékk ekki á sig mark um helgina en hann hélt hreinu gegn Sunderland.

Varnarmaður - Glen Johnson (Liverpool)
Johnson átti virkan þátt í sóknarleik Liverpool gegn Cardiff.

Varnarmaður - Gary Cahill (Chelsea)
Cahil hjálpaði Chelsea að loka algjörlega á sóknarleik Arsenal manna.

Varnarmaður - Martin Skrtel (Liverpool)
Skrtel skoraði tvívegis gegn Cardiff og er nú búinn að skora sex mörk á tímabilinu.

Varnarmaður - Liam Rosenior (Hull)
Var öflugur í vörn Hull gegn WBA og skoraði mark.

Miðjumaður - Yaya Toure (Manchester City)
Toure skoraði þrennu í burstinu gegn Fulham.

Miðjumaður - Christian Eriksen (Tottenham)
Eriksen skoraði tvö mörk og hjálpaði Tottenham að landa sigri gegn Southampton eftir að hafa lent 2-0 undir.

Miðjumaður - Wayne Rooney (Manchester United)
Skoraði bæði mörkin gegn West Ham. Það fyrra er mögulega mark tímabilsins.

Framherji - Marko Arnautovic (Stoke)
Peter Crouch og Peter Odemwingie voru góðir í útisigri Stoke gegn Aston Villa en Marko Arnautovic var maður leiksins.

Framherji - Luis Suarez (Liverpool)
Suarez er enn einu sinni í liði helgarinnar eftir þrennu gegn Cardiff.

Framherji - Andre Schurrle (Chelsea)
Schurrle var búnin að skora og leggja upp mark eftir einungis sjö mínútur gegn Arsenal.

Sjá einnig:
Fyrri úrvalslið í enska
Yaya skoraði þrennu og fær sæti í liðinu.

Yaya skoraði þrennu og fær sæti í liðinu.

Canon

Mynd: Getty Images

Schurrle er í liðinu.

Schurrle er í liðinu.

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.