Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24428 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR18.03.2024, 12:07

Hassan Jalloh í Grindavík (Staðfest)

Kantmaðurinn Hassan Jalloh hefur fengið félagaskipti yfir í Grindavík og mun spila með liðinu í Lengjudeildinni í sumar. Fótbolti.net sagði fyrst frá þessum skiptum fyrir rúmum mánuði síðan. Hassan er fjölhæfur sóknarmaður sem gekk í raðir HK fyrir sumarið 2022. Hann hjálpaði liðinu að komast upp úr Lengjudeildinni og spilaði svo 24 leiki í Bestu deildinni síðasta sumar.

FRÉTTIR16.03.2024, 06:00

Víðir fær fjóra nýja leikmenn (Staðfest)

Víðir Garði er að styrkja sig fyrir komandi átök í 3. deild karla eftir að liðinu mistókst að komast upp úr deildinni í fyrra. Víðir endaði aðeins fjórum stigum frá öðru sætinu og ætlar að gera betur í ár.

FRÉTTIR16.03.2024, 06:00

Kristrún Blöndal send til ÍR (Staðfest)

ÍR hefur verið að gera flotta hluti á undirbúningstímabilinu og er að styrkja hópinn sinn fyrir komandi átök í Lengjudeild kvenna, eftir að hafa sigrað 2. deildina í fyrra.

FRÉTTIR15.03.2024, 11:39

Rifti við HK og samdi í Færeyjum (Staðfest)

Danski framherjinn Anton Söjberg sem lék með HK seinni hluta síðasta tímabils hefur samið við færeyska félagið B36. Söjberg kom til HK í glugganum og skoraði fjögur mörk í níu leikjum og lagði upp eitt. Hann var samningsbundinn HK út komandi tímabil en rifti samningnum í vetur.

FRÉTTIR14.03.2024, 15:21

Safamýrin verður heimavöllur Grindavíkur í sumar (Staðfest)

Víkingur og Grindavík hafa gert samkomulag um að meistaraflokkar Grindavíkur leiki og æfi á Víkingssvæðinu í Safamýri í sumar. Völlurinn var heimavöllur Fram á meðan verið var að byggja aðstöðuna í Úlfarsárdal og síðan léku Kórdrengir heimaleiki sína þar. Svæðið er nú komið í hendur Víkings.

FRÉTTIR14.03.2024, 14:59

Samningi Eiðs Arons við ÍBV rift (Staðfest)

ÍBV og Eiður Aron Sigurbjörnsson hafa komist að samkomulagi um riftun á samningi leikmannsins við félagið. Frá þessu er greint í yfirlýsingu frá félaginu. Eiður skrifaði undir samning í fyrra sem átti að gilda út tímabilið 2025. Hann er 34 ára miðvörður og var fyrirliði liðsins í byrjun síðasta tímabils. <a href="https://www.fotbolti.net/news/21-07-2023/eidur-aron-alex-alveg-jafn-mikill-fyrirlidi-lidsins-og-eg" target="_blank">Það hins vegar breyttist um miðbik síðasta tímabils.</a> <a href="https://www.fotbolti.net/news/22-12-2023/ibv-ekki-fengid-neitt-tilbod-i-eid-aron" target="_blank">Eiður var orðaður við Vestra í vetur.</a> ÍBV féll úr Bestu deildinni á síðasta tímabili og verður því í Lengjudeildinni í sumar.

FRÉTTIR14.03.2024, 09:36

Kwame Quee í Grindavík (Staðfest)

Grindavík var að fá liðsstyrk fyrir komandi átök í Lengjudeildinni því Kwame Quee er genginn í raðir félagsins. Fótbolti.net greindi fyrst frá því að Kwame væri á leiðinni fyrir rúmum mánuði síðan. Hann kemur frá Síerra Leóne og er hann sjöundi leikmaðurinn sem Grindavík fær í vetur.

FRÉTTIR13.03.2024, 14:05

Guðný Árna í Kristianstad (Staðfest)

Sænska úrvalsdeildarfélagið Kristianstad hefur tilkynnt það að Guðný Árnadóttir sé búin að skrifa undir samning við félagið. Guðný kemur til Kristianstad frá AC Milan á Ítalíu.

FRÉTTIR13.03.2024, 10:00

Selfoss fær tvo erlenda leikmenn (Staðfest)

Selfoss tilkynnti í dag um komu tveggja erlendra leikmanna sem munu leika með liðinu í Lengjudeild kvenna í sumar. Sonia Rada er fædd í Bandaríkjunum en er einnig með kólumbískan ríkisborgararétt. Hún er miðvörður sem á að færa ungum leikmannahópi Selfoss aukna reynslu. Hún er fædd árið 1990.

FRÉTTIR12.03.2024, 14:08

Benítez rekinn frá Celta Vigo (Staðfest)

Spænska félagið Celta Vigo hefur sagt Rafael Benítez upp en liðið er aðeins tveimur stigum fyrir ofan fallsæti þegar tíu umferðir eru eftir. Síðasti leikur Celta Vigo undir stjórn Benítez var 4-0 tap gegn Real Madrid. Celta hefur aðeins unnið fimm deildarleiki allt tímabilið.

FRÉTTIR12.03.2024, 13:30

Alex Freyr heim í Fram (Staðfest)

Fram tilkynnti rétt í þessu með miklu stolti að Alex Freyr Elísson væri mættur aftur í dal draumanna - Úlfarsárdalinn. Alex er uppalinn í Fram og var einn af lykilmönnum liðsins áður en hann gekk í raðir Breiðabliks eftir tímaiblið 2022. Hann er nú mættur aftur í Fram eftir rúmt ár í burtu og skrifar undir tveggja ára samning.

FRÉTTIR12.03.2024, 12:47

Michael Edwards aftur til Liverpool (Staðfest)

Eigendahópur Liverpool hefur staðfest það að Michael Edwards muni snúa aftur til félagsins í sumar. Hann er nýr framkvæmdastjóri fótboltamála hjá Liverpool.

FRÉTTIR12.03.2024, 09:48

Pétur Theodór riftir við Breiðablik (Staðfest)

Pétur Theodór Árnason varð fyrir því óláni að meiðast á hné í leik með Gróttu síðasta sumar. Pétur reif liðþófa og þurfti að fara í aðgerð sem var sú fjórða á sama hnénu. Hann var búinn að skora sex mörk í níu leikjum með Gróttu áður en hann meiddist. Pétur sagði við Fótbolta.net í vetur að hann ætlaði sér að taka ákvörðun í febrúar.

FRÉTTIR11.03.2024, 23:00

Gunnar Jónas aftur í Vestra (Staðfest) - Þrír aðrir skrifa undir

Penninn var á lofti á Ísafirði í kvöld þegar nokkrir leikmenn skrifuðu undir samninga við félagið. Stærst er það að Gunnar Jónas Hauksson er kominn aftur til Vestra eftir að hafa spilað með Gróttu síðustu ár. Gunnar er 24 ára gamall fjölhæfur sóknarmaður.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.