Varane, Diaz, Matip, Yamal, Davies og Rashford koma við sögu
   fös 15. mars 2024 11:39
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Rifti við HK og samdi í Færeyjum (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Danski framherjinn Anton Söjberg sem lék með HK seinni hluta síðasta tímabils hefur samið við færeyska félagið B36.

Söjberg kom til HK í glugganum og skoraði fjögur mörk í níu leikjum og lagði upp eitt. Hann var samningsbundinn HK út komandi tímabil en rifti samningnum í vetur.

Fótbolti.net ræddi við Ómar Inga Guðmundsson þjálfara HK í janúar og staðfesti hann riftunina.

„Hann veit alveg að við erum ekki sáttir við þetta. Okkur fannst við standa allt sem við sögðum þegar hann samdi við okkur; að hann fengi að spila og hvernig við spiluðum. Okkur fannst hann vera gott 'fit' og honum leið vel. Klásúlan var sett fyrir ákveðin atvik, en að nota hana til þess svo að biðja okkur um að hækka launin sinn og breyta klásúlunni í að hann gæti labbað út aftur seinna; á miðju tímabili. Það er ekki heiðarlegt miðað við öll þau samtöl sem við áttum," sagði Ómar m.a.

Söjberg svaraði Ómari í samtali við Tipsbladet og hafði þetta að segja:

„Ég var með ákvæði sem ég valdi að nýta mér til að tryggja að ég væri á góðum stað. Þá gæti ég bæði endursamið við HK, sem mig langaði svo sannarlega til, en ég vildi líka tryggja það að þeir myndu byggja upp topp 6 lið, svo þeir myndu standa við sinn hluta samningsins. Ég tilkynnti félaginu skriflega í nóvember mánuði að ég væri 100% tilbúinn að spila áfram fyrir sömu laun og við sömdum um í sumar þegar ég skrifaði undir. Ef ég hefði ekki nýtt mér ákvæðið, þá væri ég fastur þarna í heilt ár til viðbótar. Þeir lofuðu einhverjum metnaði sem ég sá ekki fara gerast."

Söjberg er 23 ára gamall og kom til HK frá Vendsyssel í Danmörku.
Athugasemdir
banner
banner
banner