Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   lau 16. mars 2024 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Kristrún Blöndal send til ÍR (Staðfest)
Mynd: ÍR
ÍR hefur verið að gera flotta hluti á undirbúningstímabilinu og er að styrkja hópinn sinn fyrir komandi átök í Lengjudeild kvenna, eftir að hafa sigrað 2. deildina í fyrra.

Kristrún Blöndal mun leika með liðinu í sumar en hún tók þátt í sjö leikjum í Bestu deild kvenna með meistaraflokki Keflavíkur í fyrra.

Kristrún kemur til ÍR á lánssamningi frá Keflavík, en Kristrún er fædd 2005 og þykir mikið efni.

Hún mun reyna fyrir sér í Lengjudeildinni í fyrsta sinn, eftir að hafa komið við sögu í 9 leikjum í efstu deild og 2 leikjum í Mjólkurbikarnum.


Athugasemdir
banner
banner
banner