FRÉTTIR17.05.2024, 15:50
Hollendingurinn Arne Slot hefur staðfest að hann verði stjóri Liverpool á næsta tímabili. Hann skrifaði í dag undir samning hjá enska félaginu.
Hann stígur í þau stóru fótspor að taka við liðinu af Jurgen Klopp. Sá þýski hefur stýrt Liverpool við frábæran orðstír frá því í október 2015 en hann kveður núna um helgina.
FRÉTTIR17.05.2024, 12:27
Hólmar Örn Eyjólfsson, fyrirliði Vals, hefur framlengt samning sinn við félagið út tímabilið 2026. Fyrri samningur átti að renna út eftir tímabilið.
Hólmar er á sínu þriðja tímabili með Val, hann sneri heim til Íslands eftir þrettán ár í atvinnumennsku fyrir tímabilið 2022. Hann tók við fyrirliðahlutverkinu af Hauki Páli Sigurðssyni sem lagði skóna á hilluna eftir síðasta tímabil og tók á sama tíma við sem aðstoðarþjálfari Vals.
FRÉTTIR17.05.2024, 12:00
Mónakó hefur gengið frá kaupum á þýska varnarmanninum Thilo Kehrer. West Ham keypti Kehrer af PSG sumarið 2022 og greiddi fyrir hann 10,5 milljónir punda.
Mónakó greiddi um 500 þúsund pund til þess að fá Kehrer á láni í janúar og svo rétt tæplega 10 milljónir punda fyrir að fá Kehrer alfarið til félagsins núna.
FRÉTTIR17.05.2024, 10:28
Robin van Persie hefur verið ráðinn nýr stjóri hollenska úrvalsdeildarliðsins Heerenveen og skrifaði undir tveggja ára samning við félagið.
Þessi fyrrum sóknarmaður Manchester United og Arsenal hefur verið að starfa við þjálfun ungra leikmanna Feyenoord.
<i>„Þjálfarastarfið er yfirgripsmikið og krefjandi og ég stunda það af mikilli ástríðu og ánægju,“</i> segir Van Persie.
<i>„Mig langar að halda áfram að þroskast og þróast í starfinu og þetta starf passar fullkomlega við það markmið.Heerenveen er mjög gott félag með ríka hefð og dygga stuðningsmenn. Það er frábær áskorun að geta lagt sitt af mörkum."</i>
FRÉTTIR17.05.2024, 10:12
Jurgen Klopp stýrir Liverpool í síðasta sinn á sunnudag, þegar Wolves kemur í heimsókn á Anfield. Klopp sat í morgun fyrir svörum á sínum síðasta fréttamannafundi sem stjóri Liverpool og var víða komið við. Hér skoðum við það helsta:
FRÉTTIR17.05.2024, 09:08
David Wagner hefur verið rekinn frá Norwich en liðið fékk 4-0 skell gegn Leeds United í umspili Championship-deildarinnar í gær.
Eftir tapið er ljóst að Norwich verður þriðja árið í röð í B-deildinni.
FRÉTTIR17.05.2024, 08:50
Miðjumaðurinn Thiago Alcantara og varnarmaðurinn Joel Matip munu yfirgefa Liverpool eftir tímabilið. Félagið hefur staðfest þetta.
Thiago er 33 ára, fyrrum landsliðsmaður Spánar, og gekk í raðir Liverpool frá Bayern München 2020. Hann hefur spilað 98 leiki fyrir Liverpool.
Matip er 32 ára og hefur spilað 201 leik, og skorað 11 mörk, fyrir Liverpool síðan hann kom frá Schalke 2016.
FRÉTTIR15.05.2024, 12:30
Pep Lijnders hefur verið ráðinn aðalþjálfari Salzburg í Austurríki en þetta var tilkynnt núna fyrir stuttu.
Lijnders hefur starfað fyrir Liverpool frá 2014. Fyrst var hann þjálfari U16 liðsins en síðustu árin hefur hann verið aðstoðarþjálfari Jurgen Klopp og starfað náið með honum. Klopp er að hætta sem stjóri Liverpool í sumar og fer Lijnders með honum.
FRÉTTIR15.05.2024, 12:03
Jóhannes Karl Guðjónsson hefur hefur óskað eftir því að láta störfum sem aðstoðarþjálfari A landsliðs karla og mun hann taka við þjálfun liðs AB sem er í þriðju efstu deild í Danmörku. Liðið er þar núna í sjötta sæti.
Þetta eru heldur betur óvænt tíðindi þar sem Jóhannes Karl framlengdi samning sinn fyrir akkúrat mánuði síðan.
FRÉTTIR14.05.2024, 16:30
Olivier Giroud mun í sumar ganga í raðir Los Angeles FC í Bandaríkjunum en hann skrifar undir samning við félagið sem gildir til 2025. Þetta var tilkynnt í dag. Félagið er svo með möguleika að framlengja samninginn til 2026.
FRÉTTIR14.05.2024, 10:17
Franski varnarmaðurinn Raphael Varane mun yfirgefa Manchester United þegar samningur hans rennur út í sumar. Félagið hefur staðfest þetta.
Hinn 31 árs gamli Varane hefur verið þrjú síðustu tímabil á Old Trafford og leikið 93 leiki síðan hann kom frá Real Madrid 2021.
FRÉTTIR14.05.2024, 07:30
Jesse Marsch, fyrrum stjóri Leeds United, hefur verið ráðinn nýr þjálfari kanadíska karlalandsliðsins, en þetta kom fram í tilkynningu frá kanadíska sambandinu í gær.
FRÉTTIR14.05.2024, 06:00
Adam Lallana, leikmaður Brighton á Englandi, yfirgefur félagið er samningur hans rennur út eftir tímabilið en þetta staðfesti Roberto De Zerbi, stjóri félagsins, í gær.
FRÉTTIR14.05.2024, 06:00
Borussia Dortmund hefur gengið frá samningum við hinn 16 ára gamla Justin Lerma en það er Fabrizio Romano sem greinir frá tíðindunum.
FRÉTTIR13.05.2024, 17:30
Hér að neðan má sjá lista yfir 20 vinsælustu fréttir Fótbolta.net í síðustu viku, raðað eftir hversu oft þær eru lesnar.
Óskar Hrafn Þorvaldsson sagði óvænt upp hjá Haugesund, Man Utd ætlar að reka Ten Hag og þjálfarinn braut Þorra niður. Þetta eru meðal frétta á listanum.
FRÉTTIR13.05.2024, 15:00
Vivianne Miedema, ein besta fótboltakona heims, mun yfirgefa herbúðir Arsenal, þegar samningur hennar við félagið rennur út í sumar.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lundúnafélaginu í dag.
FRÉTTIR11.05.2024, 06:00
Hollenska félagið PSV Eindhoven hefur gengið frá kaupum á bandaríska sóknartengiliðnum Malik Tillman frá Bayern München en þetta kemur fram í tilkynningu frá hollenska meistaraliðinu.
FRÉTTIR10.05.2024, 18:17
Kylian Mbappe, sóknarmaður Paris Saint-Germain og franska landsliðsins, hefur staðfest að hann sé á förum frá PSG í sumar en hann sendi frá sér myndbandstilkynningu á samfélagsmiðlum í kvöld.
FRÉTTIR10.05.2024, 17:30
KFK í 3. deildinni hefur borist liðsstyrkur fyrir komandi átök í sumar því markvörðurinn Guðjón Orri Sigurjónsson hefur fengið félagaskipti til félagsins frá ÍBV.
FRÉTTIR10.05.2024, 13:09
Sveinn Margeir Hauksson, leikmaður KA, mun ekki klára tímabilið með KA en hann er á leið í háskólanám í Bandaríkjunum í haust.
Sveinn er að hefja nám í UCLA háskólanum í borg englanna. Það er <i>Soccer & Education USA</I> sem greinir frá þessu á samfélagsmiðlum sínum.
<i>„UCLA spilar í Big 10 í NCAA D1,"</I> segir í færslu fyrirtækisins sem hjálpar íþróttamönnum að komast á skólastyrk í Bandaríkjunum. NCAA D1 er sterkasta deildin í háskólaboltanum.
<i>„KA hefur sagt að það muni ekki standa í vegi fyrir strákum sem vilja fara í nám,"</I> sagði Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA, við Fótbolta.net þegar spurt var út í mögulegt háskólanám Sveins vestanhafs.