Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25180 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR01.06.2023, 13:50

Heitinga rekinn frá Ajax (Staðfest)

John Heitinga hefur verið látinn fara frá Ajax eftir aðeins fjóra mánuði í starfi. Alfred Schreuder, sem tók við sem stjóri Ajax þegar Erik ten Hag tók við Manchester United fyrir ári síðan, var rekinn í janúar og Heitinga ráðinn í staðinn.

FRÉTTIR01.06.2023, 12:11

Messi yfirgefur PSG (Staðfest)

Lionel Messi spilar sinn síðasta leik fyrir PSG þegar liðið mætir Clermont í lokaumferð frönsku deildarinnar á laugardaginn. Þetta staðfesti Christophe Galtier, stjóri PSG, á fréttamannafundi í dag.

FRÉTTIR31.05.2023, 14:45

Dalot hjá Man Utd til 2028 (Staðfest)

Diogo Dalot er búinn að skrifa undir nýjan samning við Manchester United og er hann nú samningsbundinn fram á sumarið 2028. Hann hefur verið í viðræðum að undanförnu og var í dag tilkynnt að samkomulag væri í höfn. Möguleiki er á ársframlengingu til viðbótar við samninginn. Dalot kom til Man Utd árið 2018 og hefur leikið 107 leiki með liðinu í öllum keppnum, í þeim hefur hann skorað þrjú mörk. Hann er 24 ára hægri bakvörður sem keyptur var frá Porto. Tímabilið 2020-21 var hann á láni hjá AC Milan á Ítalíu.

FRÉTTIR31.05.2023, 13:00

Lerma yfirgefur Bournemouth (Staðfest) - Verður áfram í deildinni

Bournemouth staðfesti í dag að Jefferson Lerma myndi yfirgefa félagið í sumar þegar samningur hans við félagið rennur út. Lerma var á sínum tíma metkaup hjá Bournemouth þegar félagið greiddi Levante 25 milljónir punda fyrir miðjumanninn árið 2018. Lerma hefur síðan spilað 184 leiki fyrir enska félagið.

FRÉTTIR31.05.2023, 09:30

Brentford kaupir hollenskan markvörð (Staðfest)

Brentford hefur opinberað kaup á hollenska markverðinum Mark Flekken frá Freiburg í Þýskalandi. Þessi 29 ára leikmaður er keyptur á 11 milljónir punda og skrifar undir fjögurra ára samning í Lundúnum. Hann hjálpaði Freiburg að enda í fimmta sæti þýsku Bundesligunnar á nýliðnu tímabili. Hann hefur leikið fjóra landsleiki fyrir Holland.

FRÉTTIR30.05.2023, 14:15

KA menn bauluðu á Þórsarann - „Þá kom smá aukakikk inn í þetta"

Orri Sigurjónsson var í liði Fram þegar liðið heimsótti KA á Greifavellinum í gær. Orri er Þórsari sem hafði fyrir tímabilið leikið allan sinn feril með uppeldisfélaginu. Hann söðlaði um og sneri aftur til Akureyrar í gær. Stuðningsmenn KA tóku sig til á kafla og bauluðu þegar Orri fékk boltann. <i>Baulað á Þórsarann. Orri Sigurjónsson, fyrrum leikmaður Þórs, fær létt baul úr stúkunni þegar hann ber boltann upp,"</I> skrifaði Daníel Smári Magnússon sem textalýsti leiknum hér á Fótbolta.net. Orri var spurður út í það í viðtali eftir leik.

FRÉTTIR27.05.2023, 15:29

Þýskaland: Bayern er þýskur meistari ellefta árið í röð (Staðfest)

<p>Lokaumferðin í þýsku úrvaldsdeildinni fór fram í dag og gerðust ótrúlegir hlutir. Dortmund var með titilinn í sínum höndum fyrir umferðina en liðið mætti Mainz á heimavelli á meðan Bayern heimsótti Köln. Dortmund þurfti bara að treysta á sjálfa sig og vinna leikinn.</p>

FRÉTTIR25.05.2023, 15:00

Aco hættur með Kormák/Hvöt (Staðfest) - Ingvi Rafn tekinn við

Aco Pandurevic er hættur þjálfun Kormáks/Hvatar. Frá því var greint á heimasíðu félagsins. <i>„Aco Pandurevic hefur látið af störfum sem þjálfari Kormáks Hvatar. Hann kom til starfa fyrir leiktímabilið 2022 og stýrði liðinu til 9. sætis á sínu fyrsta tímabili og þar skilur hann við það að þremur leikjum loknum í deildinni,"</I> sagði í fréttinni.

FRÉTTIR24.05.2023, 17:30

Pirlo rekinn í Tyrklandi (Staðfest)

Tyrkneska félagið Fatih Karamgumruk hefur staðfest að Andrea Pirlo hafi verið látinn fara frá félaginu. Pirlo var ráðinn aðalþjálfari liðsins síðasta sumar en var vikið úr starfi þegar þrjár umferðir eru eftir af deildinni.

FRÉTTIR24.05.2023, 11:56

Van Nistelrooy óvænt hættur hjá PSV (Staðfest)

Ruud van Nistelrooy hefur tjáð ráðamönnum hjá PSV að hann sé hættur störfum hjá félaginu. Hann hefur undanfarin ár starfað hjá félaginu en í mars í fyrra var hann ráðinn þjálfari aðalliðsins þegar vitað var að Roger Schmidt væri á förum. Van Nistelrooy hóf svo störf síðasta sumar og í vetur varð liðið bikarmeistari og er í 2. sæti deildarinnar, tíu stigum á eftir Feyenoord.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.