Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 25. maí 2023 15:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Aco hættur með Kormák/Hvöt (Staðfest) - Ingvi Rafn tekinn við
Aco vinsra megin.
Aco vinsra megin.
Mynd: Kormákur/Hvöt
Ingvi er 29 ára gamall.
Ingvi er 29 ára gamall.
Mynd: Aðdáendasíða Kormáks
Aco Pandurevic er hættur þjálfun Kormáks/Hvatar. Frá því var greint á heimasíðu félagsins.

„Aco Pandurevic hefur látið af störfum sem þjálfari Kormáks Hvatar. Hann kom til starfa fyrir leiktímabilið 2022 og stýrði liðinu til 9. sætis á sínu fyrsta tímabili og þar skilur hann við það að þremur leikjum loknum í deildinni," sagði í fréttinni.

Aco er 41 árs gamall en hann á að baki 166 leiki í meistaraflokki á Íslandi og flestir af þeim eru með Ægi á Þorlákshöfn. Hann var á Þorlákshöfn frá árinu 2011 til 2021. Hann stýrði Kormáki/Hvöt í 3. deildinni síðasta sumar og þar endaði Kormákur/Hvöt í níunda sæti deildarinnar, þremur stigum frá fallsæti.

Degi seinna tilkynnti svo félagið að Ingvi Rafn Ingvarsson hefði verið ráðinn út tímabilið. Ingvi þjálfaði einnig liðið tímabilið 2021 þegar liðið fór upp úr 4. deildinni.

„Meistaraflokksráð Kormáks Hvatar hefur ráðið Ingva Rafn Ingvarsson sem þjálfara félagsins út leiktímabilið. Ingvi þekkir liðið inn og út, hefur leikið með því í 10 ár og skorað fullt af mörkum. Ingvi hefur áður þjálfað liðið, árið 2021 þegar við enduðum í öðru sæti 4. deildar og komumst upp í þá þriðju í fyrsta sinn," sagði í fréttinni.

Kormákur/Hvöt er í níunda sæti deildarinnar með einn sigur eftir þrjá leiki, sá sigur kom gegn ÍH í fyrstu umferðinni. Næsti leikur liðsins er gegn KFS í Vestmannaeyjum á laugardag.

4. umferð deildarinnar:
fimmtudagur 25. maí
19:15 Elliði-Kári (Würth völlurinn)
19:15 Víðir-Reynir S. (Nesfisk-völlurinn)
19:15 ÍH-Árbær (Skessan)
19:15 Ýmir-Hvíti riddarinn (Kórinn)

laugardagur 27. maí
14:00 KFS-Kormákur/Hvöt (Týsvöllur)
16:00 Augnablik-Magni (Fífan)
Ástríðan - 3. umferð - Vesen á mörgum stöðum og nokkrar viðvaranir gefnar út
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner