Austurrískur landsliðsmaður í Celtic (Staðfest)
Skotlandsmeistarar Celtic hafa landað austurríska landsliðsmanninum Junior Adamu á láni frá Freiburg út þessa leiktíð.
Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24387 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.
Skotlandsmeistarar Celtic hafa landað austurríska landsliðsmanninum Junior Adamu á láni frá Freiburg út þessa leiktíð.
Miðjumaðurinn Frank Onyeka ætlar að hjálpa Coventry City í baráttu þeirra um að komast upp í ensku úrvalsdeildina, en hann mun leika með liðinu á láni frá Brentford út þessa leiktíð.
Ítalíumeistararnir í Napoli hafa keypt Alisson Santos frá portúgölsku meisturunum í Sporting frá Lissabon. Um er að ræða 3 milljóna evra lánssamning en Napoli er með ákvæði um að geta keypt hann fyrir 16 milljónir evra. Um er að ræða brasilískan vinstri kantmann sem er einnig með túnískt vegabréf. <b>Gluggadagurinn er í dag en glugganum verður lokað í ítölsku A-deildinni klukkan 19 í kvöld. Fótbolti.net stendur vaktina og færir ykkur allar helstu fréttir.</b>
Sóknarleikmaðurinn Ademola Lookman hefur verið kynntur hjá Atletico Madrid en hann skrifaði undir samning til sumarsins 2030. Lookman kemur frá Atalanta og hefur kvatt stuðningsmenn liðsins. <i>„Eftir næstum fjögur ár með félaginu er kominn tími fyrir kveðjustund. Mér hefur verið ótrúlega vel tekið í Bergamó og náð að sýna mína bestu útgáfu. Saman skrifuðum við söguna, unnum Evrópudeildina 2024. Kvöld sem ég mun aldrei gleyma,"</i> segir Lookman. Lookman, sem er 28 ára Nígeríumaður, skoraði þrennu í úrslitaleik Evrópudeildarinnar 2024; gegn Bayer Leverkusen. Hann lék lengi á Englandi; fyrir Charlton, Everton, Fulham og Leicester.
Juventus hefur fengið sænska bakvörðinn Emil Holm frá Bologna. Um er að ræða lánssamning með möguleika á kaupum eftir tímabilið. Holm er 25 ára og lék 19 leiki með Bologna í öllum keppnum á þessu tímabili. Hann er með eitt mark og fimm stoðsendingar. Juventus er með samkomulag um að geta keypt hann á 15 milljónir evra með greiðslum sem skiptast í þrjá hluta.
Guðfinnur Þór Leósson er genginn í raðir Fylkis. Hann kemur á frjálsri sölu frá ÍA. Hann er fæddur árið 1999 og getur bæði spilað á miðjunni og í vörninni. Hann er uppalinn hjá ÍA og hefur einnig leikið með venslaliðinu Kára, Víkingi Ólafsvík og Aftureldingu á ferlinum. Alls á hann skráða 212 meistaraflokksleki og 26 mörk.
Spænski kantmaðurinn Bryan Zaragoza er kominn til Roma frá Bayern München. Zaragoza kemur á láni en Roma er með möguleika á kaupum. Ef liðið kemst í Meistaradeildinni er félagið skyldugt til að kaupa hann.
Völsungur hefur samið við franska markvörðinn Jeffrey Baltus. Baltus er 34 ára og lék síðast í nepölsku úrvalsdeildinni með Lalitpur City. Hann kemur upp úr akademíu Auxerre í Frakklandi og spilaði hann með varaliði félagsins fyrir rúmum tíu árum síðan. Síðan þá hefur hann spilað í neðri deildum í Frakklandi, Belgíu og efstu deild í Nepal. Samkvæmt síðunni Transfermarkt var hann síðast á mála hjá bútanska liðinu Paro FC en hann spilaði engann leik fyrir félagið. Baltus er væntanlegur til landsins þann 14. febrúar samkvæmt tilkynningu Völsungs. Ævintýramaðurinn Patrick De Wilde tók við liðinu í haust en hann stýrði síðast kvennalandsliði Nepal áður en hann hélt til Húsavíkur.
Varnarmaðurinn Daniele Rugani hefur gengið í raðir Fiorentina frá Juventus. Fiorentina borgar 500 þúsund evrur fyrir lán út tímabilið og mun svo kaupa hann fyrir 2 milljónir evra í sumar, ef liðið nær að forðast fall. Rugani er 31 árs miðvörður sem hefur spilað fyrir Rennes, Cagliari og Ajax. Hann hefur spilað átta leiki fyrir Juve á þessu tímabili. Á ferilskrá sinni er hann með 177 leiki í ítölsku A-deildinni og fimm Ítalíumeistaratitla.
West Bromwich Albion, sem leikur í Championship-deildinni, hefur fengið lánsmenn úr úrvalsdeildinni. Jamaldeen Jimoh-Aloba, 19 ára miðjumaður Aston Villa, er kominn til West Brom á láni. Strákurinn hefur fimm sinnum komið af bekknum fyrir aðallið Villa en hans fyrsti leikur var tapleikurinn gegn Arsenal í desember.
Bradford City hefur fengið Ethan Wheatley lánaðan frá Manchester United út tímabilið. Bradford er í fimmta sæti ensku C-deildarinnar og á leið í umspil um að komast upp í Championship-deildina eins og staðan er. Félagið birti mynd af girnilegri köku, tebolla og fyndnum hatti með nafninu Ethan á samfélagsmiðlum áður en tilkynnt var um komu leikmannsins. Wheatley er tvítugur og hefur leikið þrjá aðalliðsleiki fyrir Manchester United. Hann var á láni hjá Northampton Town. <b>Gluggadagurinn er í dag en glugganum verður lokað í ensku úrvalsdeildinni klukkan 19 í kvöld. Fótbolti.net stendur vaktina og færir ykkur allar helstu fréttir.</b>
Jón Dagur Þorsteinsson er genginn í raðir norska félagsins Brann en hann kemur á láni frá þýska félaginu Hertha Berlin út tímabilið í Þýskalandi. Fyrstu leikir Jóns Dags gætu verið gegn Bologna seinna í þessum mánuði en liðin mætast í tveggja leikja einvígi umspilinu um sæti í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar.
Víkingur hefur gengið frá kaupum á Ármanni Inga Finnbogasyni frá ÍA og gerir hann fjögurra ára samning við félagið. Fótbolti.net fjallaði um yfirvofandi félagaskipti í gærkvöldi. Ármann er örvfættur hægri kantmaður sem fæddur er árið 2004 og er uppalinn hjá ÍA. Hann lék á láni hjá Grindavík í Lengjudeildinni síðasta sumar en lék sumarið 2023 í Lengjudeildinni með ÍA og 2024 í Bestu deildinni. Hann kom með beinum hætti að níu mörkum í deild og bikar á síðasta tímabili.
Bræðurnir Ísak Sindri Daníelsson Martin og Markús Andri hafa skrifað undir samning við Stjörnuna. Yngri bróðirinn, Markús Andri, þykir mjög mikið efni en hann er fæddur árið 2010 og á að baki leiki fyrir yngri landsliðin, þar af sex fyrir U17 landsliðið. Hann er varnarmaður og Ísak Sindri, sem fæddur er 2008, er markmaður. Markús kom við sögu í 15 leikjum með Hamri í 4. deildinni í fyrra og Ísak Sindri kom við sögu í fjórum leikjum.
Fótbolti.net sagði frá því á föstudag að Atli Barkarson væri í viðræðum við félag í Noregi og rétt í þessu var hann tilkynntur sem nýr leikmaður Sogndal. Hann skrifar undir samning sem gildir til tímabilsins 2028. Vinstri bakvörðurinn kemur frá Zulte Waregem í Belgíu hvar hann var í eitt og hálft ár. Hann var keyptur til Belgíu sumarið 2024 frá danska félaginu SönderjyskE og hjálpaði liðinu að fara up úr B-deildinni á síðasta tímabili. Síðasta vor fór hann í aðgerð vegna axlarmeiðsla og spilaði ekkert með Zulte Waregem fyrri hluta tímbilsins.
Valerien Ismael er ekki lengur stjóri Blackburn en í tilkynningu félagsins segir að félagið og stjórinn hafi komist að sameiginlegri niðurstöðu um að best væri að slíta samstarfinu. Frakkinn tók við stjórnartaumunum hjá Blackburn á síðasta tímabili. Undir hans stjórn vann Blackburn sjö leiki, gerði átta jafntefli og tapaði fjórtán leikjum og fékk eitt stig að meðaltali í leik. Blackburn vann 2-0 sigur á Millwall 20. desember en frá þeim leik hefur gert fjögur jafntefli og tapað fjórum deildarleikjum auk þess að hafa tapað gegn Hull í enska bikarnum. Blackburn er í fallsæti sem stendur, þremur stigum frá öruggu sæti þegar 17 umferðir eru eftir.
Miðjumaðurinn Moussa Sissoko hefur yfirgefið Watford og er kominn til gríska stórliðsins Panathinaikos. Sissoko er 36 ára og skoraði sex mörk í 61 leik fyrir Watford. Þessar fréttir koma daginn eftir að Javi Gracia lét af störfum sem stjóri Watford vegna ósættis við stjórnendur félagsins. Watford er í efri hluta Championship deildarinnar, fjórum stigum frá umspilssæti og með leik til góða.
Njarðvík heldur áfram að þétta raðirnar fyrir komandi átök í Lengjudeildinni því Hrafn Guðmundsson hefur skrifað undir þriggja ára samning við félagið. Hann er sóknarsinnaður leikmaður sem uppalinn er hjá Aftureldingu. Hann samdi við Stjörnuna síðasta vetur eftir að hafa verið hjá KR og var á láni hjá KFA síðasta sumar. Hrafn skoraði í æfingaleik með Njarðvík fyrir rúmri viku síðan og lék aftur með liðinu í gær í Lengjubikarnum gegn ÍR. Hann kemur á frjálsri sölu frá Stjörnunni en hann rifti samningi við Garðbæinga í upphafi árs. Njarðvík hefur styrkt hópinn sinn frá síðasta tímabili. Eiður Aron Sigurbjörnsson, Bragi Karl Bjarkason, Guy Smit, Aron Einarsson og Felix Mathaus komu til félagsins fyrr í vetur.
Norski miðjumaðurinn Sverr Nypan er kominn aftur til Manchester City eftir að hafa verið á láni hjá Middlesbrough í Championship-deildinni fyrri hluta tímabils. Í tilkynningu frá Middlesbrough segir að um sameiginlega ákvörðun hjá félögunum sé að ræða en þessi hæfileikaríki 19 ára leikmaður náði ekki að sýna sínar bestu hliðar hjá Boro. Hann lék alls 22 leiki fyrir félagið í öllum keppnum. City keypti Nypan frá Rosenborg fyrir 12,5 milljónir punda síðasta sumar og hann gerði fimm ára samning. City segir að leikmaðurinn snúi nú aftur til félagsins þar sem Pep Guardiola og starfslið fylgist með þróun hans.
Gunnar Jónas Hauksson hefur framlengt samning sinn við Vestra og hefur skrifað undir tveggja ára áframhaldandi samning við bikarmeistarana. Gunnar varð samningslaus eftir tímabil og var hann orðaður við Njarðvík, Gróttu, HK og Þór, ásamt því að hafa æft með Fram. Hann er 26 ára fjölhæfur leikmaður sem getur spilað sem bakvörður, kantmaður og á miðsvæðinu. Gunnar lék 25 leiki í Bestu deildinni á síðustu leiktíð ásamt því að spila stóra rullu í fræknum bikarsigri liðsins.