Man Utd íhugar að reyna við Mac Allister hjá Liverpool - Arsenal hefur áfram áhuga á Williams - Napoli vill ekki missa McTominay
   mán 02. febrúar 2026 18:07
Elvar Geir Magnússon
Alisson Santos til Napoli (Staðfest) - Funheitur í Meistaradeildinni
Mynd: Napoli
Ítalíumeistararnir í Napoli hafa keypt Alisson Santos frá portúgölsku meisturunum í Sporting frá Lissabon.

Um er að ræða 3 milljóna evra lánssamning en Napoli er með ákvæði um að geta keypt hann fyrir 16 milljónir evra.

Um er að ræða brasilískan vinstri kantmann sem er einnig með túnískt vegabréf.

Gluggadagurinn er í dag en glugganum verður lokað í ítölsku A-deildinni klukkan 19 í kvöld. Fótbolti.net stendur vaktina og færir ykkur allar helstu fréttir.

Sporting keypti þennan 23 ára leikmann síðasta sumar frá EC Vitoria fyrir rúmlega 2 milljónir evra.

Hann hefur skorað þrjú mörk og átt þrjár stoðsendingar í 31 mótsleik fyrir Sporting. Áhugavert er að öll mörkin hans hafa komið í Meistaradeildinni.

Þá má fylgja að Napoli hefur lánað sóknarmanninn Giuseppe Ambrosino, sem er 22 ára, til B-deildarliðsins Modena út tímabilið.



Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 25 20 1 4 60 21 +39 61
2 Milan 24 15 8 1 40 18 +22 53
3 Napoli 25 15 5 5 38 25 +13 50
4 Roma 25 15 2 8 31 16 +15 47
5 Juventus 25 13 7 5 43 23 +20 46
6 Atalanta 25 11 9 5 34 21 +13 42
7 Como 24 11 8 5 38 18 +20 41
8 Bologna 25 9 6 10 34 32 +2 33
9 Lazio 25 8 9 8 26 25 +1 33
10 Sassuolo 25 9 5 11 29 35 -6 32
11 Udinese 25 9 5 11 28 38 -10 32
12 Parma 25 7 8 10 18 31 -13 29
13 Cagliari 25 7 7 11 28 35 -7 28
14 Torino 25 7 6 12 25 44 -19 27
15 Genoa 25 5 9 11 29 37 -8 24
16 Cremonese 25 5 9 11 21 33 -12 24
17 Lecce 25 6 6 13 17 31 -14 24
18 Fiorentina 25 4 9 12 29 39 -10 21
19 Pisa 25 1 12 12 20 42 -22 15
20 Verona 25 2 9 14 19 43 -24 15
Athugasemdir
banner
banner