Gluggadagurinn er í dag en glugganum verður lokað í ensku úrvalsdeildinni klukkan 19 - Fótbolti.net stendur vaktina
banner
   mán 02. febrúar 2026 17:35
Elvar Geir Magnússon
Zaragoza kominn til Roma (Staðfest)
Bryan Zaragoza er kominn til Roma.
Bryan Zaragoza er kominn til Roma.
Mynd: Roma
Spænski kantmaðurinn Bryan Zaragoza er kominn til Roma frá Bayern München.

Zaragoza kemur á láni en Roma er með möguleika á kaupum. Ef liðið kemst í Meistaradeildinni er félagið skyldugt til að kaupa hann.

Zaragoza er 24 ára lágvaxinn leikmaður sem Bayern keypti í sínar raðir fyrir þremur árum síðan. Hann kostaði um 20 milljónir evra en hefur aðeins komið við sögu í sjö keppnisleikjum með þýska stórveldinu.

Hann hefur verið á láni hjá Osasuna og Celta síðustu átján mánuði en hann steig sín fyrstu skref hjá Granada, eftir að hafa alist upp í Málaga.

Hann á þrjá A-landsleiki að baki fyrir Spán en var aldrei partur af unglingalandsliðunum.

Gluggadagurinn er í dag en glugganum verður lokað í ítölsku A-deildinni klukkan 19 í kvöld. Fótbolti.net stendur vaktina og færir ykkur allar helstu fréttir.



Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 23 18 1 4 52 19 +33 55
2 Milan 22 13 8 1 35 17 +18 47
3 Napoli 23 14 4 5 33 21 +12 46
4 Juventus 23 13 6 4 39 18 +21 45
5 Roma 22 14 1 7 27 13 +14 43
6 Como 23 11 8 4 37 16 +21 41
7 Atalanta 23 9 9 5 30 20 +10 36
8 Lazio 23 8 8 7 24 21 +3 32
9 Bologna 22 8 6 8 32 27 +5 30
10 Sassuolo 23 8 5 10 27 29 -2 29
11 Udinese 22 8 5 9 25 34 -9 29
12 Cagliari 23 7 7 9 28 31 -3 28
13 Torino 23 7 5 11 22 40 -18 26
14 Genoa 23 5 8 10 27 34 -7 23
15 Cremonese 23 5 8 10 20 31 -11 23
16 Parma 23 5 8 10 15 30 -15 23
17 Lecce 23 4 6 13 13 30 -17 18
18 Fiorentina 23 3 8 12 25 36 -11 17
19 Pisa 23 1 11 11 19 40 -21 14
20 Verona 23 2 8 13 18 41 -23 14
Athugasemdir
banner
banner