Fotbolti.net
02.02.26 - 16:33
Elvar Geir Magnússon
LiveyÍtalska deildin

Rugani til Fiorentina (Staðfest)

Rugani til Fiorentina (Staðfest)
Canon

Mynd: Fiorentina

Varnarmaðurinn Daniele Rugani hefur gengið í raðir Fiorentina frá Juventus.

Fiorentina borgar 500 þúsund evrur fyrir lán út tímabilið og mun svo kaupa hann fyrir 2 milljónir evra í sumar, ef liðið nær að forðast fall.

Rugani er 31 árs miðvörður sem hefur spilað fyrir Rennes, Cagliari og Ajax. Hann hefur spilað átta leiki fyrir Juve á þessu tímabili.

Á ferilskrá sinni er hann með 177 leiki í ítölsku A-deildinni og fimm Ítalíumeistaratitla.
Fiorentina er í fallsæti í ítölsku A-deildinni, einu stigi frá öruggu sæti. Íslenski landsliðsmaðurinn Albert Guðmundsson er meðal leikmanna liðsins.

Gluggadagurinn er í dag en glugganum verður lokað í ítölsku A-deildinni klukkan 19 í kvöld. Fótbolti.net stendur vaktina og færir ykkur allar helstu fréttir.

Serie A - karlar

#LiðLmunStig
1Lazio11+1629
2Inter11+1528
3Roma11+2127
4Milan11+1024
5Como11+823
6Frosinone11+920
7Juventus11+318
8Bologna11+217
9Cagliari11-516
10Napoli11+415
11Torino11-214
12Atalanta11-314
13Genoa11-513
14Lecce11-1010
15Fiorentina11-89
16Parma11-88
17Sassuolo11-138
18Monza11-87
19Venezia11-136
20Udinese11-135
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.