Gluggadagurinn er í dag en glugganum verður lokað í ensku úrvalsdeildinni klukkan 19 - Fótbolti.net stendur vaktina
   mán 02. febrúar 2026 17:54
Elvar Geir Magnússon
Lookman kynntur hjá Atletico (Staðfest) - „Kvöld sem ég mun aldrei gleyma“
Mynd: EPA
Sóknarleikmaðurinn Ademola Lookman hefur verið kynntur hjá Atletico Madrid en hann skrifaði undir samning til sumarsins 2030.

Lookman kemur frá Atalanta og hefur kvatt stuðningsmenn liðsins.

„Eftir næstum fjögur ár með félaginu er kominn tími fyrir kveðjustund. Mér hefur verið ótrúlega vel tekið í Bergamó og náð að sýna mína bestu útgáfu. Saman skrifuðum við söguna, unnum Evrópudeildina 2024. Kvöld sem ég mun aldrei gleyma," segir Lookman.

Lookman, sem er 28 ára Nígeríumaður, skoraði þrennu í úrslitaleik Evrópudeildarinnar 2024; gegn Bayer Leverkusen. Hann lék lengi á Englandi; fyrir Charlton, Everton, Fulham og Leicester.


Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Barcelona 22 18 1 3 60 23 +37 55
2 Real Madrid 22 17 3 2 47 18 +29 54
3 Atletico Madrid 22 13 6 3 38 17 +21 45
4 Villarreal 21 13 3 5 39 23 +16 42
5 Betis 22 9 8 5 36 28 +8 35
6 Espanyol 22 10 4 8 26 27 -1 34
7 Celta 22 8 9 5 29 23 +6 33
8 Real Sociedad 22 7 7 8 30 30 0 28
9 Osasuna 22 7 5 10 26 27 -1 26
10 Alaves 22 7 4 11 20 27 -7 25
11 Athletic 22 7 4 11 21 31 -10 25
12 Girona 22 6 7 9 21 36 -15 25
13 Elche 22 5 9 8 30 32 -2 24
14 Sevilla 21 7 3 11 28 33 -5 24
15 Getafe 22 6 5 11 16 27 -11 23
16 Valencia 22 5 8 9 23 35 -12 23
17 Vallecano 22 5 7 10 18 30 -12 22
18 Mallorca 21 5 6 10 24 33 -9 21
19 Levante 21 4 6 11 24 34 -10 18
20 Oviedo 22 3 7 12 12 34 -22 16
Athugasemdir
banner
banner