Gluggadagurinn er í dag en glugganum verður lokað í ensku úrvalsdeildinni klukkan 19 - Fótbolti.net stendur vaktina
   mán 02. febrúar 2026 11:02
Elvar Geir Magnússon
Sissoko orðinn samherji Sverris í Grikklandi (Staðfest)
Mynd: Panathinaikos
Miðjumaðurinn Moussa Sissoko hefur yfirgefið Watford og er kominn til gríska stórliðsins Panathinaikos.

Sissoko er 36 ára og skoraði sex mörk í 61 leik fyrir Watford. Þessar fréttir koma daginn eftir að Javi Gracia lét af störfum sem stjóri Watford vegna ósættis við stjórnendur félagsins.

Watford er í efri hluta Championship deildarinnar, fjórum stigum frá umspilssæti og með leik til góða.

Sissoko, sem er fyrrum leikmaður Newcastle og Tottenham, verður liðsfélagi Sverris Inga Ingasonar hjá Panathinaikos en liðið er í fimmta sæti grísku úrvalsdeildarinnar. Rafael Benítez er stjóri liðsins.


Stöðutaflan England Championship - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Coventry 30 17 7 6 63 35 +28 58
2 Middlesbrough 30 17 7 6 47 29 +18 58
3 Hull City 29 16 5 8 48 40 +8 53
4 Ipswich Town 29 14 9 6 49 28 +21 51
5 Millwall 30 14 8 8 37 36 +1 50
6 Wrexham 30 12 11 7 44 37 +7 47
7 Derby County 30 12 9 9 44 37 +7 45
8 Preston NE 30 11 11 8 37 34 +3 44
9 Bristol City 30 12 7 11 40 36 +4 43
10 Watford 29 11 10 8 39 35 +4 43
11 QPR 30 12 7 11 42 43 -1 43
12 Stoke City 30 12 6 12 34 28 +6 42
13 Birmingham 30 11 9 10 41 38 +3 42
14 Southampton 30 10 10 10 43 41 +2 40
15 Swansea 30 11 6 13 34 37 -3 39
16 Leicester 30 10 8 12 40 45 -5 38
17 Sheffield Utd 29 11 3 15 40 42 -2 36
18 Charlton Athletic 29 9 8 12 29 38 -9 35
19 Norwich 30 9 6 15 37 42 -5 33
20 Portsmouth 28 8 9 11 27 37 -10 33
21 West Brom 30 9 5 16 32 47 -15 32
22 Blackburn 29 7 8 14 26 38 -12 29
23 Oxford United 29 6 9 14 27 38 -11 27
24 Sheff Wed 29 1 8 20 18 57 -39 -7
Athugasemdir
banner