Gluggadagurinn er í dag en glugganum verður lokað í ensku úrvalsdeildinni klukkan 19 - Fótbolti.net stendur vaktina
   mán 02. febrúar 2026 15:55
Elvar Geir Magnússon
Villa lánar ungu Evrópuhetjuna til West Brom (Staðfest)
Jamaldeen Jimoh-Aloba hefur verið lánaður frá Aston Villa til West Brom.
Jamaldeen Jimoh-Aloba hefur verið lánaður frá Aston Villa til West Brom.
Mynd: EPA
West Bromwich Albion, sem leikur í Championship-deildinni, hefur fengið lánsmenn úr úrvalsdeildinni.

Jamaldeen Jimoh-Aloba, 19 ára miðjumaður Aston Villa, er kominn til West Brom á láni. Strákurinn hefur fimm sinnum komið af bekknum fyrir aðallið Villa en hans fyrsti leikur var tapleikurinn gegn Arsenal í desember.

Hann kom svo af bekknum og skoraði sitt fyrsta aðalliðsmark þegar Villa vann endurkomusigur gegn RB Leipzig í Evrópudeildinni í síðustu viku.

Jimoh-Aloba þekkir hvern krók og kima hjá West Brom enda var hann í akademíu félagsins í tæplega áratug, áður en hann fór til Aston Villa 2023.

West Brom er í 21. sæti Championship-deildarinnar, þremur stigum fyrir ofan fallsæti.

Gluggadagurinn er í dag en glugganum verður lokað í ensku úrvalsdeildinni klukkan 19 í kvöld. Fótbolti.net stendur vaktina og færir ykkur allar helstu fréttir.
Stöðutaflan England Championship - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Coventry 30 17 7 6 63 35 +28 58
2 Middlesbrough 30 17 7 6 47 29 +18 58
3 Hull City 29 16 5 8 48 40 +8 53
4 Ipswich Town 29 14 9 6 49 28 +21 51
5 Millwall 30 14 8 8 37 36 +1 50
6 Wrexham 30 12 11 7 44 37 +7 47
7 Derby County 30 12 9 9 44 37 +7 45
8 Preston NE 30 11 11 8 37 34 +3 44
9 Bristol City 30 12 7 11 40 36 +4 43
10 Watford 29 11 10 8 39 35 +4 43
11 QPR 30 12 7 11 42 43 -1 43
12 Stoke City 30 12 6 12 34 28 +6 42
13 Birmingham 30 11 9 10 41 38 +3 42
14 Southampton 30 10 10 10 43 41 +2 40
15 Swansea 30 11 6 13 34 37 -3 39
16 Leicester 30 10 8 12 40 45 -5 38
17 Sheffield Utd 29 11 3 15 40 42 -2 36
18 Charlton Athletic 29 9 8 12 29 38 -9 35
19 Norwich 30 9 6 15 37 42 -5 33
20 Portsmouth 28 8 9 11 27 37 -10 33
21 West Brom 30 9 5 16 32 47 -15 32
22 Blackburn 29 7 8 14 26 38 -12 29
23 Oxford United 29 6 9 14 27 38 -11 27
24 Sheff Wed 29 1 8 20 18 57 -39 -7
Athugasemdir
banner
banner