Man Utd íhugar að reyna við Mac Allister hjá Liverpool - Arsenal hefur áfram áhuga á Williams - Napoli vill ekki missa McTominay
   mán 02. febrúar 2026 18:14
Brynjar Ingi Erluson
Onyeka til Coventry (Staðfest)
Mynd: EPA
Miðjumaðurinn Frank Onyeka ætlar að hjálpa Coventry City í baráttu þeirra um að komast upp í ensku úrvalsdeildina, en hann mun leika með liðinu á láni frá Brentford út þessa leiktíð.

Nígeríumaðurinn var eitt sinn í mikilvægu hlutverki hjá Brentford en fallið niður í goggunarröðinni bæði undir stjórn Keith Andrews og þegar Thomas Frank stýrði liðinu.

Hann hefur nokkrum sinnum lýst yfir óánægju sinni með spiltímann og er nú farinn til Coventry City í B-deildinni þar sem hann mun spila stórt hlutverk í baráttu þeirra.

Onyeka verður á láni út tímabilið en kaupskylda virkjast ef Coventry kemst upp í úrvalsdeildina.

Coventry er á toppnum í B-deildinni undir stjórn Frank Lampard með 58 stig.




Stöðutaflan England Championship - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Coventry 32 18 8 6 66 36 +30 62
2 Middlesbrough 32 18 7 7 50 33 +17 61
3 Millwall 32 16 8 8 41 37 +4 56
4 Ipswich Town 30 15 9 6 51 29 +22 54
5 Hull City 31 16 6 9 50 43 +7 54
6 Derby County 32 13 9 10 47 39 +8 48
7 Wrexham 32 12 12 8 46 41 +5 48
8 Preston NE 32 12 12 8 40 36 +4 48
9 Bristol City 32 13 8 11 45 40 +5 47
10 Southampton 32 12 10 10 48 44 +4 46
11 Birmingham 32 12 10 10 43 39 +4 46
12 Watford 32 11 12 9 41 38 +3 45
13 QPR 32 12 8 12 43 46 -3 44
14 Stoke City 32 12 7 13 34 29 +5 43
15 Sheffield Utd 32 13 3 16 45 45 0 42
16 Swansea 32 12 6 14 38 39 -1 42
17 Norwich 32 11 6 15 42 42 0 39
18 Charlton Athletic 32 10 9 13 31 41 -10 39
19 Portsmouth 31 9 9 13 30 40 -10 36
20 Blackburn 32 9 8 15 30 41 -11 35
21 West Brom 32 9 7 16 32 47 -15 34
22 Leicester 32 10 8 14 44 51 -7 32
23 Oxford United 32 6 10 16 28 44 -16 28
24 Sheff Wed 32 1 8 23 19 64 -45 -7
Athugasemdir
banner