Gluggadagurinn er í dag en glugganum verður lokað í ensku úrvalsdeildinni klukkan 19 - Fótbolti.net stendur vaktina
   mán 02. febrúar 2026 18:21
Brynjar Ingi Erluson
Austurrískur landsliðsmaður í Celtic (Staðfest)
Mynd: EPA
Skotlandsmeistarar Celtic hafa landað austurríska landsliðsmanninum Junior Adamu á láni frá Freiburg út þessa leiktíð.

Austurríski sóknarmaðurinn er þriðji leikmaðurinn sem Celtic fær í þessum glugga á eftir Julian Araujo og Tomas Cvancara.

Hann fór feril sinn hjá Liefering í Austurríki og blómstraði þá hjá Salzburg, St. Gallen og nú síðast Freiburg þar sem hann hefur skorað sjö mörk í 67 leikjum í öllum keppnum.

Þessi 24 ára gamli leikmaður á níu A-landsleiki með Austurríki en ekki enn skorað fyrir þjóð sína.

Sky Sports segir að Celtic hafi sett kaupákvæði í lánssamninginn en upphæðin er óljós.


Athugasemdir
banner
banner