Fotbolti.net
02.02.26 - 13:31
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Andri Lucas fær nýjan stjóra (Staðfest) - Verður það Bilic eða Mowbray?

Tekur Slaven Bilic við Blackburn. Á myndinni er hann að stýra West Ham í æfingaleik gegn Manchester City á Laugardalsvelli.

Tekur Slaven Bilic við Blackburn. Á myndinni er hann að stýra West Ham í æfingaleik gegn Manchester City á Laugardalsvelli.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Valerien Ismael er ekki lengur stjóri Blackburn en í tilkynningu félagsins segir að félagið og stjórinn hafi komist að sameiginlegri niðurstöðu um að best væri að slíta samstarfinu.

Frakkinn tók við stjórnartaumunum hjá Blackburn á síðasta tímabili. Undir hans stjórn vann Blackburn sjö leiki, gerði átta jafntefli og tapaði fjórtán leikjum og fékk eitt stig að meðaltali í leik.

Blackburn vann 2-0 sigur á Millwall 20. desember en frá þeim leik hefur gert fjögur jafntefli og tapað fjórum deildarleikjum auk þess að hafa tapað gegn Hull í enska bikarnum. Blackburn er í fallsæti sem stendur, þremur stigum frá öruggu sæti þegar 17 umferðir eru eftir.
Landsliðsframherjinn Andri Lucas Guðjohnsen er leikmaður Blackburn og er markahæsti leikmaður liðsins í deildinni með sjö mörk skoruð. Hann meiddist gegn Millwall og sneri til baka á laugardag í tapinu gegn Hull í deildinni.

Tveir stjórar hafa verið orðaðir við Blackburn síðustu klukkutímana. Tony Mowbray var orðaður við Blackburn á BBC í gær en hann stýrði Blackburn á árunum 2017-22 og kom liðinu upp úr C-deildinni 2018.

Í dag var svo Slaven Bilic orðaður við félagið á talkSPORT. Bilic er fyrrum stjóri West Ham og Watford. Blackburn tekur á móti Sheffield Wednesday á morgun.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Millwall2+56
1Cardiff City5+815
1Coventry46+5295
2Ipswich Town46+3384
2West Brom2+36
2Ipswich Town5+312
3Leeds5+511
3Charlton Athletic2+26
4Wolves5+310
4Wolves2+24
5QPR2+24
5Sheffield Utd5+19
6Nott. Forest509
6Blackburn2+14
6Hull City46+473
7Watford2+14
7Preston NE5+18
8Bolton2+14
8Hull City5+57
9Swansea2+14
9Middlesbrough5+17
10Portsmouth203
10QPR507
11Middlesbrough203
11Reading507
12Derby County5-27
12Cardiff City202
13Birmingham202
13Bristol City5+16
14Wrexham202
14Fulham5+16
15Barnsley506
15Sheffield Utd202
16Sheff Wed506
16Derby County2-11
17West Ham2-11
17Millwall5+25
18Burnley2-21
18Aston Villa5-25
19Sunderland5-35
19Bristol City2-21
20Birmingham5-34
20Preston NE2-30
21Burton5-54
21Stoke City2-30
22Oxford United46-1447
22Lincoln City2-30
22Norwich5-64
23Leicester46-1046
23Norwich2-40
23Brentford5-42
24Southampton2+1-1
24Bolton5-62
24Sheff Wed46-600
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.