Bræðurnir Ísak Sindri Daníelsson Martin og Markús Andri hafa skrifað undir samning við Stjörnuna.
Yngri bróðirinn, Markús Andri, þykir mjög mikið efni en hann er fæddur árið 2010 og á að baki leiki fyrir yngri landsliðin, þar af sex fyrir U17 landsliðið. Hann er varnarmaður og Ísak Sindri, sem fæddur er 2008, er markmaður.
Markús kom við sögu í 15 leikjum með Hamri í 4. deildinni í fyrra og Ísak Sindri kom sömuleiðis við sögu í nokkrum leikjum.

Tilkynning Stjörnunnar
Okkur er sönn ánægja að tilkynna að bræðurnir Ísak og Markús hafa gengið í raðir félagsins frá Hamri í Hveragerði.
Þeir hafa undanfarið verið að æfa með Stjörnunni en hafa núna skrifað undir samninga við félagið. Þeir eru afar efnilegir en Ísak er markmaður fæddur árið 2008 og Markús er varnarmaður sem fæddur er árið 2010.
Stjarnan er stolt af því að þeir hafa valið félagið til að halda áfram sinni þróun og bindum við miklar vonir við þá í framtíðinni.
VIð treystum því að allir taki vel á móti þeim og bjóðum þá hjartanlega velkomna í Garðabæinn!
Athugasemdir