Todd Cantwell til Rangers (Staðfest)
Enski leikmaðurinn Todd Cantwell gerði í dag langtímasamning við skoska félagið Rangers en hann kemur frá Norwich.
Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25193 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.
Enski leikmaðurinn Todd Cantwell gerði í dag langtímasamning við skoska félagið Rangers en hann kemur frá Norwich.
Hér að neðan má sjá lista yfir 20 vinsælustu fréttir Fótbolta.net í síðustu viku, raðað eftir hversu oft þær eru lesnar. Fimmtán stig voru dregin af Juventus, gert var risatilboð í íslenskan landsliðsmann og það er alltaf fjör í kringum enska boltann.
Hlín Heiðarsdóttir er gengin í raðir Aftureldingar og skrifar undir tveggja ára samning við félagið. Þetta tilkynnir Afturelding á samfélagsmiðlum sínum. Miðjumaðurinn kemur frá uppeldisfélaginu Fjölni þar sem hún hefur verið máttarstólpi í liðinu á síðustu árum.
Jhon Duran, 19 ára kólumbískur sóknarleikmaður, er formlega orðinn leikmaður Aston Villa en hann kemur frá Chicago Fire í bandarísku MLS-deildinni. <i>„Duran er spennandi og hæfileikaríkur ungur leikmaður sem hefur spilað fyrir A-landslið Kólumbíu,"</i> segir í tilkynningu Aston Villa.
Ronald Koeman hefur verið ráðinn þjálfari hollenska landsliðsins að nýju, hann tekur við af Louis van Gaal sem lét þjálfaramöppuna upp í hillu eftir HM í Katar. Á fréttamannafundi í dag lofaði Koeman því að Holland myndi spila 4-3-3 leikkerfi undir sinni stjórn en ekki 5-3-2 leikkerfi eins og Van Gaal spilaði, við litla hrifningu fjölmiðla og almennings í Hollandi. Koeman stýrði Hollandi 2018-2020 en lét af störfum til að taka við Barcelona. Hann var svo rekinn þaðan 2021 og Xavi ráðinn til starfa. Fyrr á árinu varð hann bikarmeistari með Börsungum. Á stjóraferli sínum hefur Koeman meðal annars stýrt Everton, Southampton, Valencia og Ajax.
Þórsarar tilkynntu rétt í þessu að Kristján Atli Marteinsson væri genginn í raðir félagsins og myndi leika með liðinu í Lengjudeildinni á komandi tímabili.
Rebekka Sverrisdóttir er gengin í raðir Vals en hún kemur frá uppeldisfélagi sínu KR. Hún spilar oftast í vörninni. Rebekka, sem fædd er árið 1992, þekkir ágætlega til á Hlíðarenda því hún lék með Val á árunum 2014-2016. Fyrir utan þau þrjú tímabil hefur Rebekka alla tíð leikið með KR.
Magðalena Ólafsdóttir mun leika með Aftureldingu næstu tvö árin en þetta tilkynnti félagið á samfélagsmiðlum í gær.
Varnarmaðurinn Bjarki Aðalsteinsson er farinn frá Leikni eftir að hafa spilað fyrir félagið í sex ár. Þetta staðfestu Leiknismenn í gær.
Króatíski landsliðsbakvörðurinn Josip Juranovic er genginn til liðs við Union Berlín í Þýskalandi en hann kemur frá skoska stórveldinu Celtic.
Kínverska landsliðskonan Linli Tu skrifaði í dag undir tveggja ára samning við Keflavík en hún kemur til félagsins frá Fjarðabyggð/Hetti/Leikni.
Enski varnarmaðurinn Craig Dawson gekk í dag til liðs við Wolves frá West Ham fyrir 3,3 milljónir punda.
Íslenska landsliðskonan Elísa Viðarsdóttir framlengdi í gær samning sinn við Val til næstu tveggja ára.
Youssoufa Moukoko framlengdi í gær samning sinn við Borussia Dortmund til 2026.
Enska B-deildarfélagið Burnley hefur fest kaup á sænska varnarmanninum Hjalmar Ekdal frá Djurgården en kaupverðið er ekki gefið upp.
<p>Arnar Daníel Aðalsteinsson hefur gengið til liðs við Gróttu frá Breiðablik en leikmaðurinn var á láni hjá Gróttu í Lengjudeildinni á síðustu leiktíð.</p>
<p>Ólafur Örn Eyjólfsson er búinn að ganga til liðs við Þrótt Vogum en hann kemur til liðsins frá HK.</p>
Dalvík/Reynir hefur fengið liðsstyrk fyrir komandi átök í 2. deild því markvörðurinn Auðunn Ingi Valtýsson er kominn til félagsins á láni frá Þórsurum. Lánssamningurinn gildir út komandi tímabil. Þorlákur Árnason, þjálfari Þórs, sagði í vetur að Auðunn færi líki líklega á lán á komandi tímabili og eftir komu Ómars Castaldo Einarssonar í Þór var það orðið næsta víst.
Mosfellingurinn, Bjarki Steinn Bjarkason, skrifaði í dag undir lánssamning við Foggia í ítölsku C-deildinni en hann kemur til félagsins frá Venezia.
Noni Madueke er nú formlega genginn í raðir Chelsea frá PSV Eindhoven.