Enski leikmaðurinn Todd Cantwell gerði í dag langtímasamning við skoska félagið Rangers en hann kemur frá Norwich.
Cantwell, sem er 24 ára, var eitt sinn stjarna á hraðri uppleið. Hann skoraði 6 mörk fyrir Norwich í ensku úrvalsdeildinni tímabilið 2019-2020 og var orðaður við Liverpool, Manchester United og Tottenham.
Ekkert varð úr þeim skiptum og féll Norwich niður í B-deildina. Hann hefur fengið takmarkaðan spiltíma síðan þá og nú mun hann reyna að koma ferlinum aftur í gang hjá Rangers í Skotlandi.
Rangers staðfesti í dag að hann væri mættur frá Norwich en kaupverðið er ekki gefið upp.
It’s not official until you see that scarf ?????????? pic.twitter.com/2frMhIbq2w
— Rangers Football Club (@RangersFC) January 23, 2023
Athugasemdir