Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25086 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR02.02.2026, 15:55

Villa lánar ungu Evrópuhetjuna til West Brom (Staðfest)

West Bromwich Albion, sem leikur í Championship-deildinni, hefur fengið lánsmenn úr úrvalsdeildinni. Jamaldeen Jimoh-Aloba, 19 ára miðjumaður Aston Villa, er kominn til West Brom á láni. Strákurinn hefur fimm sinnum komið af bekknum fyrir aðallið Villa en hans fyrsti leikur var tapleikurinn gegn Arsenal í desember.

FRÉTTIR02.02.2026, 15:52

Man Utd lánar Ethan Wheatley til Bradford (Staðfest)

Bradford City hefur fengið Ethan Wheatley lánaðan frá Manchester United út tímabilið. Bradford er í fimmta sæti ensku C-deildarinnar og á leið í umspil um að komast upp í Championship-deildina eins og staðan er. Félagið birti mynd af girnilegri köku, tebolla og fyndnum hatti með nafninu Ethan á samfélagsmiðlum áður en tilkynnt var um komu leikmannsins. Wheatley er tvítugur og hefur leikið þrjá aðalliðsleiki fyrir Manchester United. Hann var á láni hjá Northampton Town. <b>Gluggadagurinn er í dag en glugganum verður lokað í ensku úrvalsdeildinni klukkan 19 í kvöld. Fótbolti.net stendur vaktina og færir ykkur allar helstu fréttir.</b>

FRÉTTIR02.02.2026, 14:36

Jón Dagur til Brann (Staðfest)

Jón Dagur Þorsteinsson er genginn í raðir norska félagsins Brann en hann kemur á láni frá þýska félaginu Hertha Berlin út tímabilið í Þýskalandi. Fyrstu leikir Jóns Dags gætu verið gegn Bologna seinna í þessum mánuði en liðin mætast í tveggja leikja einvígi umspilinu um sæti í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar.

FRÉTTIR02.02.2026, 14:13

Ármann Ingi keyptur til Víkings (Staðfest)

Víkingur hefur gengið frá kaupum á Ármanni Inga Finnbogasyni frá ÍA og gerir hann fjögurra ára samning við félagið. Fótbolti.net fjallaði um yfirvofandi félagaskipti í gærkvöldi. Ármann er örvfættur hægri kantmaður sem fæddur er árið 2004 og er uppalinn hjá ÍA. Hann lék á láni hjá Grindavík í Lengjudeildinni síðasta sumar en lék sumarið 2023 í Lengjudeildinni með ÍA og 2024 í Bestu deildinni. Hann kom með beinum hætti að níu mörkum í deild og bikar á síðasta tímabili.

FRÉTTIR02.02.2026, 13:56

Efnilegir Hvergerðingar semja við Stjörnuna (Staðfest)

Bræðurnir Ísak Sindri Daníelsson Martin og Markús Andri hafa skrifað undir samning við Stjörnuna. Yngri bróðirinn, Markús Andri, þykir mjög mikið efni en hann er fæddur árið 2010 og á að baki leiki fyrir yngri landsliðin, þar af sex fyrir U17 landsliðið. Hann er varnarmaður og Ísak Sindri, sem fæddur er 2008, er markmaður. Markús kom við sögu í 15 leikjum með Hamri í 4. deildinni í fyrra og Ísak Sindri kom við sögu í fjórum leikjum.

FRÉTTIR02.02.2026, 13:46

Atli Barkar til Sogndal (Staðfest)

Fótbolti.net sagði frá því á föstudag að Atli Barkarson væri í viðræðum við félag í Noregi og rétt í þessu var hann tilkynntur sem nýr leikmaður Sogndal. Hann skrifar undir samning sem gildir til tímabilsins 2028. Vinstri bakvörðurinn kemur frá Zulte Waregem í Belgíu hvar hann var í eitt og hálft ár. Hann var keyptur til Belgíu sumarið 2024 frá danska félaginu SönderjyskE og hjálpaði liðinu að fara up úr B-deildinni á síðasta tímabili. Síðasta vor fór hann í aðgerð vegna axlarmeiðsla og spilaði ekkert með Zulte Waregem fyrri hluta tímbilsins.

FRÉTTIR02.02.2026, 13:31

Andri Lucas fær nýjan stjóra (Staðfest) - Verður það Bilic eða Mowbray?

Valerien Ismael er ekki lengur stjóri Blackburn en í tilkynningu félagsins segir að félagið og stjórinn hafi komist að sameiginlegri niðurstöðu um að best væri að slíta samstarfinu. Frakkinn tók við stjórnartaumunum hjá Blackburn á síðasta tímabili. Undir hans stjórn vann Blackburn sjö leiki, gerði átta jafntefli og tapaði fjórtán leikjum og fékk eitt stig að meðaltali í leik. Blackburn vann 2-0 sigur á Millwall 20. desember en frá þeim leik hefur gert fjögur jafntefli og tapað fjórum deildarleikjum auk þess að hafa tapað gegn Hull í enska bikarnum. Blackburn er í fallsæti sem stendur, þremur stigum frá öruggu sæti þegar 17 umferðir eru eftir.

FRÉTTIR02.02.2026, 11:02

Sissoko orðinn samherji Sverris í Grikklandi (Staðfest)

Miðjumaðurinn Moussa Sissoko hefur yfirgefið Watford og er kominn til gríska stórliðsins Panathinaikos. Sissoko er 36 ára og skoraði sex mörk í 61 leik fyrir Watford. Þessar fréttir koma daginn eftir að Javi Gracia lét af störfum sem stjóri Watford vegna ósættis við stjórnendur félagsins. Watford er í efri hluta Championship deildarinnar, fjórum stigum frá umspilssæti og með leik til góða.

FRÉTTIR02.02.2026, 10:33

Hrafn Guðmunds til Njarðvíkur (Staðfest)

Njarðvík heldur áfram að þétta raðirnar fyrir komandi átök í Lengjudeildinni því Hrafn Guðmundsson hefur skrifað undir þriggja ára samning við félagið. Hann er sóknarsinnaður leikmaður sem uppalinn er hjá Aftureldingu. Hann samdi við Stjörnuna síðasta vetur eftir að hafa verið hjá KR og var á láni hjá KFA síðasta sumar. Hrafn skoraði í æfingaleik með Njarðvík fyrir rúmri viku síðan og lék aftur með liðinu í gær í Lengjubikarnum gegn ÍR. Hann kemur á frjálsri sölu frá Stjörnunni en hann rifti samningi við Garðbæinga í upphafi árs. Njarðvík hefur styrkt hópinn sinn frá síðasta tímabili. Eiður Aron Sigurbjörnsson, Bragi Karl Bjarkason, Guy Smit, Aron Einarsson og Felix Mathaus komu til félagsins fyrr í vetur.

FRÉTTIR02.02.2026, 10:29

Nypan snýr aftur til Man City eftir lán hjá Boro (Staðfest)

Norski miðjumaðurinn Sverr Nypan er kominn aftur til Manchester City eftir að hafa verið á láni hjá Middlesbrough í Championship-deildinni fyrri hluta tímabils. Í tilkynningu frá Middlesbrough segir að um sameiginlega ákvörðun hjá félögunum sé að ræða en þessi hæfileikaríki 19 ára leikmaður náði ekki að sýna sínar bestu hliðar hjá Boro. Hann lék alls 22 leiki fyrir félagið í öllum keppnum. City keypti Nypan frá Rosenborg fyrir 12,5 milljónir punda síðasta sumar og hann gerði fimm ára samning. City segir að leikmaðurinn snúi nú aftur til félagsins þar sem Pep Guardiola og starfslið fylgist með þróun hans.

FRÉTTIR02.02.2026, 10:24

Gunnar Jónas tekur slaginn með Vestra (Staðfest)

Gunnar Jónas Hauksson hefur framlengt samning sinn við Vestra og hefur skrifað undir tveggja ára áframhaldandi samning við bikarmeistarana. Gunnar varð samningslaus eftir tímabil og var hann orðaður við Njarðvík, Gróttu, HK og Þór, ásamt því að hafa æft með Fram. Hann er 26 ára fjölhæfur leikmaður sem getur spilað sem bakvörður, kantmaður og á miðsvæðinu. Gunnar lék 25 leiki í Bestu deildinni á síðustu leiktíð ásamt því að spila stóra rullu í fræknum bikarsigri liðsins.

FRÉTTIR02.02.2026, 10:03

Kolbeinn til Valerenga á láni (Staðfest)

Kolbeinn Finnsson hefur gengið í raðir norska félagsins Valerenga á láni frá Utrecht út tímabilið. Lánssamningurinn gildir til 30. júní en norska félagið er með kaupákvæði í samningnum.

FRÉTTIR02.02.2026, 09:44

Gruda lánaður til RB Leipzig (Staðfest)

Brajan Gruda leikmaður Brighton hefur gengið í raðir þýska Bundesligufélagsins RB Leipzig á láni frá Brighton út tímabilið. Fabian Hurzeler, stjóri Brighton, segir að Gruda hafi viljað meiri spiltíma og hann hafi ekki getað lofað honum því seinni hluta tímabilsins. <i>„Þessi lánssamningur er góð lausn fyrir alla aðila. Þetta gefur honum tækifæri á að þróa sig áfram. Við óskum honum góðs gengis út tímabilið,"</i> segir Hurzeler. RB Leipzig er í fimmta sæti þýsku deildarinanr en stöðutöfluna má sjá hér fyrir neðan.

FRÉTTIR01.02.2026, 21:50

Jérémie Boga til Juventus (Staðfest)

Ítalska stórveldið Juventus staðfesti félagaskipti Jérémie Boga skömmu fyrir upphafsflautið í leik liðsins gegn Parma í Serie A.

FRÉTTIR01.02.2026, 16:34

Maignan orðinn launahæstur (Staðfest)

Franski markvörðurinn Mike Maignan verður áfram hjá AC Milan eftir að félaginu tókst að gera langtímasamning við hann. Maignan verður með nýja samningnum launahæsti leikmaður félagsins ásamt nokkrum stjörnum.

FRÉTTIR01.02.2026, 11:47

Ortega frá Man City til Nottingham Forest (Staðfest)

Þýski markvörðurinn Stefan Ortega er genginn til liðs við Nottingham Forest frá Man City. Kaupverðið gæti orðið allt að 500 þúsund pund en hann skrifar undir samning út tímabilið.

FRÉTTIR01.02.2026, 08:00

Gilardino rekinn frá Pisa (Staðfest)

Ítalska A-deildarfélagið Pisa hefur sparkað þjálfaranum Alberto Gilardino eftir aðeins rúma sex mánuði í starfi en þetta tilkynnti félagið eftir 3-1 tapið gegn Sassuolo í gær.

FRÉTTIR31.01.2026, 12:25

Guy Smit til Njarðvíkur (Staðfest)

Guy Smit er genginn til liðs við Njarðvíkur en hann kemur frá Vestra þar sem hann varð bikarmeistari með liðinu á síðasta tímabili. Hann skrifar undir samning sem gildir út árið 2027. Smit er þrítugur Hollendingur en hann kom fyrst hingað til lands árið 2020 til að spila með Leikni. Hann hjálpaði liðinu að komast upp úr Lengjudeildinni.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.