Leicester ræður nýjan stjóra (Staðfest)
Leicester City, sem mun spila í C-deildinni á Englandi á næsta tímabili, hefur ráðið skoska stjórann Russell Martin til næstu þriggja ára.
Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24378 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.
Leicester City, sem mun spila í C-deildinni á Englandi á næsta tímabili, hefur ráðið skoska stjórann Russell Martin til næstu þriggja ára.
Ítalska félagið Juventus hefur virkjað kaupákvæði Fílabeinsstrendingsins Jeremie Boga, en félagið greiðir Nice um fimm milljónir evra til að gera skiptin varanleg. Hann skrifaði undir þriggja ára samning.
Sambandsdeildarmeistarar Crystal Palace hafa ráðið Pierre Sage sem nýjan stjóra félagsins en samningur hans er til þriggja ára.
Brighton hefur fest kaup á portúgalska hægri bakverðinum Costinha frá gríska stórveldinu Olympiakos fyrir 8 milljónir punda.
Maurizio Sarri er tekinn við Atalanta en liðið mun spila í Sambandsdeildinni á komandi tímabili. Sarri er 67 ár og þarfnast ekki kynningar. Hann hefur stýrt í rúmlega 800 leikjum, vann Evrópudeildina með Chelsea, ítölsku deildina með Juventus og sló stigamet Napoli þrjú tímabil í röð. Hann lét af störfum hjá Lazio nýlega en liðið komst í bikarúrslit undir hans stjórn á liðnu tímabili en beið þar lægri hlut gegn Inter, sem vann tvöfalt. Hjá Atalanta mun hann starfa með íþróttastjóranum Cristiano Giuntoli að nýju en þeir tveir unnu saman hjá Napoli á sínum tíma.
Cesar Peixoto hefur verið staðfestur sem nýr stjóri Wolverhampton Wanderers og hefur skrifað undir tveggja ára samning. Peixoto er 46 ára og kom frá portúgalska félaginu Gil Vicente. Hann tekur við Úlfunum af Rob Edwards sem var rekinn í síðustu viku.
Real Madrid hefur fest kaup á spænska Marc Cucurella frá Chelsea. Bakvörðurinn skrifar undir sex ára samning við félagið. Real Madrid greiðir rúmlega 50 milljónir punda fyrir Cucurella en hann var samningsbundinn Chelsea til ársins 2029. Lundúnaliðið borgaði rúmar 60 milljónir punda fyrir þann spænska fyrir fjórum árum.
Frá 1. júlí mun Víðir Sigurðsson hefja störf hjá Fótbolti.net. Mun hann skrifa pistla um íslenska boltann fyrir síðuna.<br><br>Víðir hefur starfað sem íþróttafréttamaður í 45 ár, þ.e frá árinu 1981. Hann hefur starfað hjá Dagblaðinu, Þjóðviljanum, DV og síðastliðin 25 ár hjá Morgunblaðinu.
Roberto Mancini er hættur sem þjálfari hjá katarska stórveldinu Al-Sadd eftir að hafa unnið efstu deild þar í landi á síðustu leiktíð.
Ralf Rangnick er ekki að taka við starfi yfirmanns fótboltamála hjá AC Milan eins og ítalskir fjölmiðlar hafa verið að skrifa um.
Manchester City goðsögnin Yaya Toure er tekinn við þjálfun slóvösku meistaranna í Slovan Bratislava en samningurinn er til þriggja ára.
Jón Þór Hauksson er nýr þjálfari Stjörnunnar, en hann kemur í stað Jökuls Elísabetarson sem var látinn taka poka sinn í gær. Þetta kemur fram í tilkynningu Stjörnunnar í dag.
Jökull Elísabetarson og Stjarnan hafa komist að samkomulagi um að hann hætti sem þjálfari liðsins.
Will Still er tekinn við sem nýr stjóri Auxerre í Frakklandi, hann skrifar undir tveggja ára samning með möguleika á árs framlengingu. Still er 33 ára Englendingur sem vakti mikla athygli fyrir nokkrum árum fyrir árangur sinn með Reims í Frakklandi og ást sína á tölvuleiknum Football Manager. Hann var rekinn sem stjóri Southampton í nóvember aðeins hálfu ári eftir að hann tók við liðinu.
Jose Mourinho er nýr þjálfari Real Madrid á Spáni, en þetta tilkynnti félagið á heimasíðu sinni í kvöld.
Landsliðsmaðurinn Hjörtur Hermannson verður ekki áfram hjá gríska félaginu Volos þegar samningur hans við félagið rennur út í lok mánaðar. Hjörtur er 31 árs varnarmaður sem gekk í raðir félagsins í janúar í fyrra þegar hann kom frá Carrarese.
Martin O'Neill verður áfram stjóri Celtic á næsta tímabili eftir að hafa stýrt liðinu til sigurs í bæði deild og bikar sem bráðabirgðastjóri. Hann tók tímabundið við liðinu eftir brotthvarf Brendan Rodgers og sneri svo aftur í janúar eftir stutta stjóratíð Wilfried Nancy.
Úlfarnir hafa nú staðfest að stjórinn Rob Edwards hefur verið rekinn eftir aðeins sjö mánuði við stjórnvölinn. Áður hafði félagið sagst standa við bakið á stjóranum. Skyndilega bárust fréttir af því að næsti stjóri Wolves yrði Cesar Peixoto, Portúgali sem stýði Gil Vicente í sjötta sætið í portúgölsku deildinni.
Hinn 16 ára gamli Kennet Eichhorn er genginn til liðs við Leverkusen frá Hertha Berlin en hann skrifar undir fimm ára samning við félagið. Sky Sports í Þýskalandi greinir frá því að Leverkusen borgaði 8-9 milljónir evra fyrir hann.
Ben Davies hefur skrifað undir nýjan eins árs samning við Tottenham. Hann er á leið inn í sitt 13. tímabil með liðinu. Davies spilaði aðeins fimm leiki á síðasta tímabili en en meiðsli setti strik í reikninginn. Roberto De Zerbi hrósaði honum hins vegar fyrir leiðtogahæfileika sína á erfiðu tímabili þar sem Tottenham bjargaði sér frá falli á síðustu stundu.