Ben Davies hefur skrifað undir nýjan eins árs samning við Tottenham. Hann er á leið inn í sitt 13. tímabil með liðinu.
Davies spilaði aðeins fimm leiki á síðasta tímabili en en meiðsli setti strik í reikninginn. Roberto De Zerbi hrósaði honum hins vegar fyrir leiðtogahæfileika sína á erfiðu tímabili þar sem Tottenham bjargaði sér frá falli á síðustu stundu.

Davies er 33 ára varnarmaður en hann hefur spilað 363 leiki fyrir Tottenham. Hann gekk til liðs við félagið frá Swansea árið 2014.
Þá hefur félagið staðfest að Yves Bissouma muni yfirgefa félagið þegar samningur hans við félagið rennur út um mánaðarmótin.
Bissouma gekk til liðs við félagið frá Brighton árið 2022. Hann kom aðeins við sögu í ellefu leikjum á síðasta tímabili. Meiðsli og vandræði utan vallar settu stórt strik í reikninginn.