Fotbolti.net
13.06.26 - 19:39
Ívan Guðjón Baldursson
Í samstarfi við styrktaraðila

Mancini hættur hjá Al-Sadd (Staðfest) - Að taka við Ítalíu?

Mancini hættur hjá Al-Sadd (Staðfest) - Að taka við Ítalíu?
Canon

Mynd: EPA

Roberto Mancini er hættur sem þjálfari hjá katarska stórveldinu Al-Sadd eftir að hafa unnið efstu deild þar í landi á síðustu leiktíð.
Mancini skrifaði undir tveggja ára samning við Al-Sadd í nóvember og gerði vel að stýra liðinu til sigurs í katörsku deildinni.

Al-Sadd vildi halda Ítalanum en leyfði honum að segja upp samningnum. Talið er að hann sé að taka við ítalska landsliðinu í annað sinn á ferlinum.

Mancini stýrði Ítalíu frá 2018 til 2023 og náði mögnuðum árangri með landsliðið áður en það byrjaði að dala. Hann stýrði Ítalíu til sigurs á Evrópumótinu 2021 og bætti landsliðið heimsmet Spánar og Brasilíu þegar það fór í gegnum 37 leiki í röð án þess að tapa.

Mancini sagði upp starfinu eftir að Ítalíu mistókst að komast á HM 2022 og steinlá gegn Argentínu í Finalissima úrslitaleiknum, þar sem Evrópumeistararnir mæta Suður-Ameríkumeisturunum.

Mancini að taka aftur við Ítalíu
TENGT EFNI

Mancini að taka aftur við Ítalíu



Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.