Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   mið 10. júní 2026 19:14
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Eichhorn til Leverkusen (Staðfest) - Var orðaður við Liverpool og Man City
Mynd: Leverkusen
Hinn 16 ára gamli Kennet Eichhorn er genginn til liðs við Leverkusen frá Hertha Berlin en hann skrifar undir fimm ára samning við félagið.

Sky Sports í Þýskalandi greinir frá því að Leverkusen borgaði 8-9 milljónir evra fyrir hann.

Eichhorn er einn efnilegasti leikmaður Þýskalands en hann hefur verið orðaður við stórlið að undanförnu. Hann var orðaður við félög á borð við Liverpool, Bayern og Man City.

Hann braut sér leið inn í aðallið Hertha á liðnu tímabili þar sem hann kom við sögu í 16 leikjum í næst efstu deild og skoraði eitt mark. Þá spilaði hann tvo bikarleiki og skoraði einnig mark í þeirri keppni


Slapp