Fotbolti.net
13.06.26 - 10:53
Brynjar Ingi Erluson

Jón Þór tekur við Stjörnunni (Staðfest)

Jón Þór tekur við Stjörnunni (Staðfest)
Canon

Mynd: Stjarnan

Jón Þór Hauksson er nýr þjálfari Stjörnunnar, en hann kemur í stað Jökuls Elísabetarson sem var látinn taka poka sinn í gær. Þetta kemur fram í tilkynningu Stjörnunnar í dag.
Stjarnan kvaddi Jökul seint í gærkvöldi, en hann hafði verið í þjálfarateymi meistaraflokks frá árinu 2021, fyrst sem aðstoðarþjálfari áður en hann tók við keflinu af Ágústi Gylfasyni árið 2023.

Stjörnumenn hafa ekki verið nógu duglegir við að sækja úrslit á þessari leiktíð og sitja í 9. sæti deildarinnar. Þá féll liðið úr Mjólkurbikarnum eftir tap gegn Aftureldingu.

Niðurstaðan var því sú að láta Jökul fara og var Jón Þór ráðinn í hans stað í dag. Hann kemur til félagsins frá Vestra, þar sem hann hefur verið hluti af þjálfarateyminu frá því um mitt síðasta sumar.

Jón Þór þekkir vel til hjá Stjörnunni, en hann starfaði áður hjá félaginu og þekkir því umhverfið, fólkið í kringum klúbbinn og menninguna sem lifir innan knattspyrnudeildarinnar.

Áður stýrði hann ÍA á Akranesi og íslenska kvennalandsliðinu.

Hann mun stýra sínum fyrsta leik gegn Breiðabliki á þriðjudaginn.

„Við hlökkum til að taka á móti honum á SAMSUNGVELLINUM og erum sannfærð um að völlurinn og stuðningsfólk Stjörnunnar muni taka vel á móti honum og liðinu!“ segir í tilkynningu Stjörnunnar í dag.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.16+4243
2KR16+2235
3Fram15+1333
4Breiðablik15+826
5Valur16-619
6Keflavík16-819
7ÍBV15-716
8Stjarnan15-815
9ÍA15-1215
10KA15-814
11FH15-1112
12Þór15-2511
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.