Yaya Toure tekur við slóvösku meisturunum (Staðfest)

Mynd: Slovan Bratislava

Mynd: Slovan Bratislava
Manchester City goðsögnin Yaya Toure er tekinn við þjálfun slóvösku meistaranna í Slovan Bratislava en samningurinn er til þriggja ára.
Fyrrum miðjumaðurinn eyddi fjölmörgum árum hjá Manchester City og átti risastóran þátt í uppgangi félagsins, en hann lék einnig með Barcelona á Spáni á farsælum ferli sínum.
Hann sneri sér að þjálfun eftir ferilinn. Yaya þjálfaði hjá akademíu Tottenham Hotspur og var aðstoðarþjálfari Roberto Mancini hjá sádiarabíska landsliðinu.
Yaya hefur nú fengið tækifæri sem aðalþjálfari en hann hefur verið ráðinn nýr þjálfari Slovan Bratislava í Slóvakíu. Liðið varð deildarmeistari í 32. sinn á síðustu leiktíð og fær Yaya það hlutverk að leiða liðið áfram næstu þrjú árin.
„Ég er ótrúlega ánægður og spenntur. Ég get ekki beðið eftir að mæta í vinnuna á mánudag. Forveri minn á mikla virðingu skilið fyrir það sem hann afrekaði með Slovan. Ég vil byggja ofan á það ásamt því að koma með eitthvað nýtt og einstakt inn í liðið. Fótbolti er mér allt og áskoranir eru eitthvað sem ég elska.
„Ég er spenntur fyrir því að þjálfa þetta frábæra félag, með þessa ríku sögu og fallega leikvang. Þetta er félag með mikinn metnað og aðstaða félagsins kom mér skemmtilega á óvart, enda er hún í hæsta gæðaflokki. Með Slovan vil ég spila yfirráðandi fótbolta, vinna leiki og reyna að stjórna leikjum svo við getum glatt stuðningsmenn okkar.
„Einnig er ég spenntur fyrir því að kynnast leikmönnunum og hef ég nú þegar reynt að læra eins mikið og ég get um liðið, en það mikilvægasta er hvernig leikmenn bregðast við á æfingum. Ég fékk það tækifæri að vinna sem aðstoðarmaður Roberto Mancini, en ég hef lengi beðið eftir því að fá að vinna að mínu eigin verkefni sem aðalþjálfari.
„Ég er þakklátur fyrir tækifærið til að koma til toppfélags, sem ég horfði nýlega á spila Meistaradeildarleik gegn Manchester City. Ég get ekki beðið eftir mánudeginum og er spenntur fyrir komandi tímum,“ sagði Yaya við undirskrift.

Yaya Touré is the new head coach of Slovan Bratislava. The club’s management has agreed to a three-year contract with the 43-year-old former star player. https://t.co/TI70pNnPQu@YayaToure #WelcometoSlovan pic.twitter.com/lhDzTyzydd
— ŠK Slovan Bratislava (@SKSlovan) June 13, 2026