Martin O'Neill verður áfram stjóri Celtic á næsta tímabili eftir að hafa stýrt liðinu til sigurs í bæði deild og bikar sem bráðabirgðastjóri.
Hann tók tímabundið við liðinu eftir brotthvarf Brendan Rodgers og sneri svo aftur í janúar eftir stutta stjóratíð Wilfried Nancy.
Hann tók tímabundið við liðinu eftir brotthvarf Brendan Rodgers og sneri svo aftur í janúar eftir stutta stjóratíð Wilfried Nancy.
O'Neill, sem er 74 ára, hefur nú samþykkt eins árs samning við Celtic með möguleika um árs framlengingu.
Í viðtali fyrir úrslitaleikinn gegn Hearts í maí sagði O'Neill ekki vera viss um að hann hafi orku til að stýra liðinu áfram en hann hefur greinilega fundið orkuna.
O'Neill gerði mjög góða hluti við stjórnvölinn hjá Celtic frá 2000 til 2005 áður en hann var ráðinn til Aston Villa.
Celtic Football Club is delighted to announce the appointment of Martin O’Neill as Football Manager on a one-year contract with a one-year option.#CelticFC????
— Celtic Football Club (@CelticFC) June 11, 2026



