Hall vill fara til Man Utd - Líka áhugi Man Utd á Robinson - Mourinho vill fá Gvardiol frá City
   fös 12. júní 2026 13:30
Kári Snorrason
Will Still snýr aftur til Frakklands og tekur við Auxerre (Staðfest)
Will Still hefur verið mikið í sviðsljósinu síðustu ár.
Will Still hefur verið mikið í sviðsljósinu síðustu ár.
Mynd: EPA
Will Still er tekinn við sem nýr stjóri Auxerre í Frakklandi, hann skrifar undir tveggja ára samning með möguleika á árs framlengingu.

Still er 33 ára Englendingur sem vakti mikla athygli fyrir nokkrum árum fyrir árangur sinn með Reims í Frakklandi og ást sína á tölvuleiknum Football Manager.

Hann var rekinn sem stjóri Southampton í nóvember aðeins hálfu ári eftir að hann tók við liðinu.

Auxerre endaði í fimmtánda sæti í Ligue 1 á nýafstöðnu tímabili í Frakklandi.

Eins og áður sagði náði Still eftirtektarverðum árangri í Frakklandi fyrst með Reims en hann tók síðar við Lens. Reims þurfti um tíma að borga sektir fyrir hvern leik sem Still stýrði þar sem hann var ekki með nægileg þjálfararéttindi.


Slapp
banner
banner