Hall vill fara til Man Utd - Líka áhugi Man Utd á Robinson - Mourinho vill fá Gvardiol frá City
banner
   fös 12. júní 2026 20:33
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Jökull rekinn frá Stjörnunni (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jökull Elísabetarson og Stjarnan hafa komist að samkomulagi um að hann hætti sem þjálfari liðsins.

Jökull var aðstoðarþjálfari liðsins árið 2021 en tók við af Ágústi Gylfasyni sem aðalþjálfari árið 2023.

Liðið hefur unnið sér þátttökurétt í Sambandsdeildinni tvisvar undir hans stjórn. Liðið hefur hins vegar verið í vandræðum á þessu tímabili og situr í 9. sæti Bestu deildarinnar með tíu stig eftir tíu umferðir. Þá féll liðið úr Mjólkurbikarnum á dögunum eftir tap gegn Aftureldingu.

„Jökull hefur ávallt sinnt sínum störfum fyrir félagið af miklum metnaði og dugnaði og unnið ómetanlegt starf fyrir Stjörnuna. Við óskum Jökli og hans fólki alls hins besta og velfarnaðar í framtíðinni." Segir í tilkynningu frá Stjörnunni.

Jón Þór Hauksson hefur verið nefndur sem mögulegur arftaki Jökuls og eru sögusagnir um að hann muni stýra liðinu út tímabliið.


Slapp
banner