Arsenal á höttunum eftir Williams - Liverpool og Manchester-liðin hafa líka áhuga - Juventus í viðræðum við Aston Villa
   fim 11. júní 2026 18:33
Brynjar Ingi Erluson
Mourinho snýr aftur til Real Madrid (Staðfest)
Mynd: EPA
Jose Mourinho er nýr þjálfari Real Madrid á Spáni, en þetta tilkynnti félagið á heimasíðu sinni í kvöld.

Ráðningin á Mourinho er eitt verst geymda leyndarmál síðustu vikna.

Florentino Perez vann forsetakosningarnar hjá félaginu síðustu helgi og tilkynnti í kjölfarið að Mourinho væri að snúa aftur í þjálfarastólinn.

Þetta er í annað sinn sem hann þjálfar Madrídinga, en hann stýrði liðinu frá 2010 til 2013.

Real Madrid greiðir Benfica 15 milljónir evra til að fá Mourinho lausan, en hann hefur skrifað undir þriggja ára samning.

Mourinho tekur formlega við Madrídingum 13. júlí þegar undirbúningstímabilið hefst.


Slapp
banner
banner