FRÉTTIR22.01.2026, 23:30
Svissneski sóknarmaðurinn Alisha Lehmann, frægasta fótboltakona heims, hefur skrifað undir tveggja og hálfs árs samning við Leicester. Hún verður liðsfélagi Hlínar Eiríksdóttur.
Lehmann er gríðarlega vinsæl á samfélagsmiðlum en tæplega 16 milljónir fylgja henni á Instagram.
FRÉTTIR22.01.2026, 20:30
Tottenham hefur samið við brasilíska varnarmanninn Souza en hann kemur til liðsins frá Santos í heimalandinu.
Hann er 19 ára gamall vinstri bakvörður en hann skrifar undir langtíma samning við félagið.
FRÉTTIR22.01.2026, 17:06
Brasilíski miðjumaðurinn Casemiro hefur gefið það út að hann muni yfirgefa Manchester United þegar samningur hans við félagið rennur út í sumar.
Casemiro var keyptur til United frá Real Madrid sumarið 2022 og hefur hann unnið enska bikarinn og deildabikarinn sem leikmaður félagsins. Hann hefur til þessa leikið 146 leiki fyrir United og skorað í þeim 21 mark.
FRÉTTIR22.01.2026, 09:05
FH hefur keypt Adolf Daða Birgisson frá Stjörnunni en þetta kemur fram í tilkynningu frá Hafnarfjarðarfélaginu. Hann skrifaði undir fjögurra ára samning.
<i>„Tækifærin hafa verið af skornum skammti undanfarið en við ætlum okkur að hjálpa honum að koma ferlinum á fulla ferð á nýjan leik,"</i> segir Davíð Þór Viðarsson, yfirmaður fótboltamála hjá FH.
Síðasta sumar var Adolf ekki í mjög stóru hlutverki hjá Garðbæingum, hann kom við sögu í 17 leikjum í Bestu deildinni og skoraði hann í þeim eitt mark. Hann gerði þá eitt mark í fjórum leikjum í Mjólkurbikarnum.
Adolf Daði er 21 árs gamall og spilar á kantinum. Hann getur líka leyst aðrar stöður framarlega á vellinum. Hann á að baki þrjá leiki með U21 landsliði Íslands.
<i>„Við höfum fylgst með Adolf í dágóðan tíma og erum mjög ánægðir með að hafa náð að klófesta hann. Hann kemur inn með mikla orku, hraða og vinnusemi. Getur leyst báðar kantstöðurnar og framherjastöðuna hjá okkur. Hann hefur einnig fína reynslu úr efstu deild,"</i> segir Davíð í tilkynningu FH.
FRÉTTIR22.01.2026, 07:30
Oscar Wasilewski hefur samið við Fjölni til tveggja ára en hann kemur frá Kára á Akranesi.
FRÉTTIR21.01.2026, 21:11
Þór/KA hefur tilkynnt fimm nýja leikmenn fyrir komandi átök í Bestu deildinni en þrjár af þeim koma frá nágrönnum þeirra í Tindastóli og þá hefur félagið sótt tvo bandaríska leikmenn.
FRÉTTIR21.01.2026, 18:53
Ítalski miðjumaðurinn Edoardo Bove skrifaði undir fimm og hálfs árs samning við enska B-deildarfélagið Watford í dag.
FRÉTTIR21.01.2026, 18:41
Grindavík/Njarðvík, sem vann sér sæti í Bestu deild kvenna síðasta haust, hafa fengið til sín bandaríska miðjumanninn Maci Teater en hún gerir samning út næsta tímabil.
FRÉTTIR21.01.2026, 06:00
Marc Andre ter Stegen hefur skrifað undir samning við Girona en hann kemur á láni út tímabilið frá Barcelona.
Ter Stegen meiddist illa á síðustu leiktíð en hann hefur fallið niður goggunarröðina hjá Barcelona eftir að hann sneri aftur með komu Joan Garcia og Wojciech Szczesny.
FRÉTTIR20.01.2026, 20:00
Rósey Björgvinsdóttir er gengin til liðs við Þrótt frá FHL. Hún skrifar undir þriggja ára samning.
Rósey er varnarmaður og er fædd árið 2004 en hún var fyrirliði FHL sem féll úr Bestu deildinni á síðustu leiktíð.
FRÉTTIR20.01.2026, 13:00
Telma Steindórsdóttir hefur skrifað undir þriggja ára samning við Stjörnuna. Hún kemur til Stjörnunnar eftir að hafa spilað í þrjú ár með Fram.
Hún er tvítugur varnarmaður sem Stjarnan bindur miklar vonir við. Telma, sem á að baki sex unglingalandsleiki, er uppalin hjá Val og hefur leikið með KH, KR og HK ásamt Fram á meistaraflokksferlinum.
FRÉTTIR20.01.2026, 09:55
Bournemouth hefur keypt ungverska miðjumanninn Alex Tóth frá Ferencvaros fyrir 10,4 milljónir punda.
Þessi tvítugi leikmaður hefur skrifað undir fimm og hálfs árs samning við Bournemouth.
Tóth á níu landsleiki fyrir Ungverja en Benfica, Galatasaray og Lazio höfðu einnig sýnt honum áhuga.
FRÉTTIR20.01.2026, 06:00
Víkingur Ólafsvík hefur tilkynnt nýjan leikmann en Bandaríkjamaðurinn Jackson Vander Ven er kominn til félagsins frá Flatirons FC sem leikur í USL 2-deildinni í Bandaríkjunum.
FRÉTTIR19.01.2026, 20:50
Bryndís Arna Níelsdóttir er gengin til liðs við Breiðabliks en félagið greinir frá þessu á samfélagsmiðlum í kvöld.
FRÉTTIR19.01.2026, 18:14
Hinn hálf-íslenski Eyþór Martin Björgólfsson er mættur til skoska úrvalsdeildarfélagsins Motherwell frá Umeå FC í Svíþjóð. Þetta kemur fram í tilkynningu Motherwell í kvöld.
FRÉTTIR19.01.2026, 17:32
Jonathan Rasheed er genginn í raðir Gautaborgar frá KA. Rasheed gekk til liðs við KA fyrir síðasta tímabil og skrifaði undir 1+1 samning við liðið.
Hann varð fyrir því óláni að slíta hásin skömmu eftir komu sína til Íslands og náði einungis þremur leikjum með KA undir lok tímabils.
Rasheed var með Gautaborg í æfingaferð liðsins og hefur nú skrifað undir samning út komandi tímabil í Allsvenskan með möguleika á að framlengja um eitt ár.
FRÉTTIR19.01.2026, 16:42
Manchester City hefur tilkynnt komu enska varnarmannsins Marc Guehi. Hann kemur frá Crystal Palace og skrifar undir fimm og hálfs árs langan samning.
Guehi, var að renna út af samningi við Crystal Palace í sumar, en City lagði fram tilboð eftir meiðsli varnarmanna liðsins, Josko Gvardiol og Ruben Dias.
FRÉTTIR19.01.2026, 15:10
Eiður Jack Erlingsson er genginn í raðir Þróttar í Vogum eftir að hafa verið hjá ÍBV seinni hluta síðasta tímabils.
Eiður þekkir til í Vogum eftir að hafa leikið á láni með liðinu tímabilið 2024.
Hann er uppalinn i Þrótti Reykjavík en yfirgaf Laugardalinn í sumar. Hann lék einnig með FH í yngri flokkum.
FRÉTTIR19.01.2026, 13:00
Jack Harrison er genginn í raðir ítalska félagsins Fiorentina frá Leeds á láni út tímabilið. Ítalskir fjölmiðlar greina frá því að Fiorentina er með ákvæði í samningnum um að gera skiptin varanleg.
Harrison hefur verið undanfarin tvö tímabil á láni hjá Everton. Engledingurinn hefur komið við sögu í 13 leikjum Leeds á tímabilinu, en einungis byrjað þrjá þeirra.
Hjá Fiorentina verður Harrison liðsfélagi íslenska landsliðsmannsins Alberts Guðmundssonar.
FRÉTTIR19.01.2026, 11:46
Þeir Þorkell og Þóroddur Víkingsson hafa yfirgefið Fylki. Þetta hefur Fótbolti.net fengið staðfest.
Þeir voru með áframhaldandi samning við félagið en er nú frjálst að finna sér nýtt félag.
Tvíburarnir eru nýorðnir 22 ára og eru þeir uppaldir hjá Fylki.