Arsenal selur Torreira til Galatasaray (Staðfest)
Úrúgvæski miðjumaðurinn Lucas Torreira hefur gengið frá vistaskiptum sínum frá Arsenal til Galatasaray í Tyrklandi en þetta staðfestir enska félagið á heimasíðu sinni í dag.
Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25217 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.
Úrúgvæski miðjumaðurinn Lucas Torreira hefur gengið frá vistaskiptum sínum frá Arsenal til Galatasaray í Tyrklandi en þetta staðfestir enska félagið á heimasíðu sinni í dag.
Alexis Sanchez er laus allra mála hjá Inter eftir að hann komst að samkomulagi um að rifta samningi sínum við félagið. Þetta kemur fram í yfirlýsingu Inter í dag.
Marcos Senesi er genginn í raðir Bournemouth en enska félagið kaupir leikmanninn frá Feyenoord í Hollandi.
Isco Alarcón er orðinn leikmaður Sevilla en hann gerði tveggja ára samning við félagið. Hann stóðst læknisskoðun í morgun og kemur á frjálsri sölu frá Real Madrid. Isco er þrítugur sóknarmiðjumaður sem gekk til liðs við Real Madrid frá Malaga árið 2012 en hann hefur unnið spænsku deildina þrisvar og Meistaradeildina fimm sinnum með Madridar liðinu. Hann verður kynntur formlega fyrir framan stuðningsmenn Sevilla á næstu dögum. Hann lék 38 landsleiki og skoraði 12 mörk á árunum 2013-2019.
Markvörðurinn Jasper Cillesen hefur yfirgefið spænska félagið Valencia og er á leið heim til Hollands. Hann gengur í raðir NEC Nijmegen en ljóst er að hans verður ekki mjög sárt saknað hjá Valencia. Á síðasta tímabili missti hann stöðu sína til georgíska markvarðarins unga Giorgi Mammardashvili.
Í síðustu viku var greint frá því að Glen Riddersholm væri líklegastur til að taka við sænska félaginu IFK Norrköping. Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari Breiðabliks, hafði verið í umræðunni um að taka við starfinu en sænska félagið tilkynnti í dag að Riddersholm væri nýr þjálfari liðsins.

Bournemouth hefur staðfest komu Neto til félagsins. Hann kemur á frjálsri sölu frá Barcelona og gerir eins árs samning við enska félagið.

María Lena Ásgeirsdóttir er gengin til liðs við sænska C-deildarliðið Örebro en hún kemur frá HK. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.
Hollenski miðjumaðurinn Gini Wijnaldum mun spila með Roma á láni frá Paris Saint-Germain á komandi leiktíð. Ítalska félagið greindi frá félagaskiptunum á samfélagsmiðlum í kvöld.
Belgíski framherjinn Christian Benteke er farinn frá Crystal Palace eftir sex ára dvöl hjá félaginu en hann gengur í raðir D.C. United í Bandaríkjunum.
Fílabeinsstrendingurinn Maxwel Cornet er genginn til liðs við West Ham frá Burnley fyrir 17,5 milljónir punda. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lundúnarliðinu í kvöld.
Írski miðvörðurinn Shane Duffy er genginn í raðir Fulham á láni frá Brighton út tímabilið. Þessi þrítugi leikmaður er sjötti maðurinn sem gengur í raðir nýliða Fulham.
Chelsea er búið að ganga frá kaupum á vinstri bakverðinum Marc Cucurella frá Brighton. Hann skrifar undir samning við Chelsea sem gildir til ársins 2028.
Nígeríski landsliðsmaðurinn Ademola Lookman er genginn í raðir Atalanta frá RB Leipzig í Þýskalandi. Ítalska félagið kaupir þennan 24 ára vængmann á um 15 milljónir evra. Lookman fæddist á Englandi og lék fyrir ensku yngri landsliðin, hann er fyrrum leikmaður Everton, Fulham og Leicester. Atalanta er í Bergamó og hafnaði í 8. sæti ítölsku A-deildarinnar á síðasta tímabili.

Riqui Puig hefur yfirgefið Barcelona og gert samning til ársins 2025 við LA Galaxy í MLS deildinni í Bandaríkjunum.

Lorenzo Lucca er genginn til liðs við Ajax frá ítalska liðinu Pisa SC.

Hinn 32 ára gamli Cesar Azpilicueta hefur skrifað undir nýjan samning við Chelsea sem gildir til ársins 2024.

Renato Sanches er genginn til liðs við franska liðið PSG og gerir fimm ára samning við félagið. Þessi 24 ára gamli Portúgali kemur til liðsins frá Lille.

Kaupverðið er talið vera í kringum 15 milljónir evra.

Hollendingurinn Wout Droste hefur verið ráðinn þjálfari Kára sem leikur í 3. deild karla.
Vinstri bakvörðurinn Alex Telles hefur yfirgefið herbúðir Manchester United og er kominn yfir til Sevilla. Hann mun klæðast treyju númer þrjú hjá spænska úrvalsdeildarfélaginu.