Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 04. ágúst 2022 17:45
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Renato Sanches til PSG (Staðfest)
Mynd: Getty Images

Renato Sanches er genginn til liðs við franska liðið PSG og gerir fimm ára samning við félagið. Þessi 24 ára gamli Portúgali kemur til liðsins frá Lille.

Kaupverðið er talið vera í kringum 15 milljónir evra.


Hann er uppalinn hjá Benfica og vann tvöfalt með liðinu á sínu fyrsta tímabili 2015/16. Bayern Munchen festi síðan kaup á honum árið 2016 áður en Christophe Galtier núverandi stjóri PSG fékk hann til Lille árið 2019.

Þar varð hann svo deildarmeistari tímabilið 2020-21.

Hann á 32 landsleiki að baki með Portúgal og hefur skorað þrjú mörk. Hann var hluti af liðinu sem varð Evrópumeistari árið 2016.


Athugasemdir
banner
banner
banner