Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 05. ágúst 2022 18:26
Brynjar Ingi Erluson
Rooney fær Benteke frá Crystal Palace (Staðfest)
Christian Benteke mun spila fyrir Wayne Rooney
Christian Benteke mun spila fyrir Wayne Rooney
Mynd: EPA
Belgíski framherjinn Christian Benteke er farinn frá Crystal Palace eftir sex ára dvöl hjá félaginu en hann gengur í raðir D.C. United í Bandaríkjunum.

Benteke skoraði 37 mörk í 177 leikjum á sex árum sínum hjá Palace en hann var meðal annars markahæsti maður liðsins tímabilið 2016/2017.

Framherjinn var í byrjunarliði Palace í byrjun síðustu leiktíðar en missti svo sæti sitt í liðinu og fékk fáar mínútur seinni hlutann.

Benteke, sem er 31 árs, er nú farinn frá Palace eftir sex ár hjá félaginu en hann mun nú halda til Bandaríkjanna og spila fyrir Wayne Rooney hjá D.C. United. Enska félagið greindi frá þessu í kvöld.

Framherjinn á 45 leiki og 18 mörk fyrir belgíska landsliðið.


Athugasemdir
banner
banner
banner