Kristín Dís framlengir við Breiðablik (Staðfest)
Varnarmaðurinn Kristín Dís Árnadóttir hefur framlengt samning sinn við Breiðablik. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Blikum á heimsvæði félagsins á Facebook í dag.
Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25089 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.
Varnarmaðurinn Kristín Dís Árnadóttir hefur framlengt samning sinn við Breiðablik. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Blikum á heimsvæði félagsins á Facebook í dag.
Bikarmeistarar Vestra hafa fengið til sín danska miðjumanninn Imran Mehanovic frá Brönshöj BK í Danmörku.
Davíð Kristján Ólafsson er genginn í raðir gríska félagsins Larissa sem kaupir hann frá Cracovia í Póllandi. Fótbolti.net sagði frá áhuga Larissa í síðustu viku.
Amorim var látinn taka pokann sinn og Manchester United hefur verið í stjóraleit. Hér að neðan má sjá lista yfir 20 vinsælustu fréttir Fótbolta.net í síðustu viku, raðað eftir hversu oft þær eru lesnar.
Xabi Alonson er hættur sem aðalþjálfari Real Madrid. Spænska félagið segir frá þessum tíðindum í yfirlýsingu rétt í þessu. Þar kemur fram að um sameiginlega ákvörðun sé að ræða. Alonso kom til Real í sumar eftir að hafa gert frábæra hluti með Bayer Leverkusen i Þýskalandi sem var hans fyrsta stóra aðalþjálfarastarf. <i>„Alonso verður alltaf í miklum metum hjá stuðningsmönnum Real Madrid því hann er goðsögn hjá félaginu. Real Madrid verður alltaf hans heimili. Félagið þakkar Xabi Alonso og öllu hans teymi fyrir þeirra vinnu og óskar þeim alls hins besta í næsta kafla lífsins,"</I> segir m.a. í yfirlýsingunni.
FH tilkynnti í dag að Mackenzie Smith væri gengin í raðir félagsins en hún kemur frá Fram þar sem hún hefur spilað undanfarin tvö ár. Fótbolti.net sagði frá því í síðustu viku að Mackenzie væri á leið í FH.
Stefán Teitur Þórðarson er formlega orðinn leikmaður þýska B-deildarliðins Hannover 96. Íslenski landsliðsmiðjumaðurinn er keyptur frá Preston North End. Íslenski landsliðsmiðjumaðurinn er 27 ára og skrifar undir samning til 30. júní 2029.
Landsliðskonan Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir er gengin í raðir ítalska félagsins Parma frá Breiðabliki. Parma situr í 10. sæti ítölsku úrvalsdeildarinnar, þremur stigum frá fallsæti þegar 13 umferðir eru eftir. Hún er þriðji Blikinn til að halda út í atvinnumennsku á síðustu vikunni og annar Blikinn til að semja á Ítalíu. Andre Rut Bjarnadóttir var tilkynnt hjá Anderlecht í Belgíu í síðutu viku og Birta Georgsdóttir samdi við Genoa. Vinstri bavkörðurinn kom til Breiðabliks frá Völsungi fyrir tímabilið 2018, varð fljótt einn allra besti bakvörður deildarinnar og kom sér strax í stórt hlutverk í Kópavoginum. Hún varð fjórum sinnum Íslandsmeistari og þrisvar sinnum bikarmeistari með Blikum. Áslaug Munda á að baki 21 A-landsleik og var hluti af landsliðinu sem fór á EM 2022 og 2025. Meiðsli, og aðallega höfuðmeiðsli, hafa sett strik í reikninginn hjá Mundu síðustu ár. Hún kom við sögu í sjö deildarleikjum, fimm Evrópuleikjum og þremur bikarleikjum á síðasta tímabili. Síðasta vor útskrifaðist hún úr Harvard og í viðtali við Fótbolta.net fyrir rúmu ári síðan talaði hún um að hún vildi prófa eitthvað nýtt í lífinu.
ÍBV hefur tilkynnt um ráðningu á Aleksandar Linta. ÍBV hafnaði í níunda sæti Bestu deildarinnar á síðasta tímabili en Þorlákur Árnason lét óvænt af störfum í vetur. Fótbolti.net heimsótti Linta til Serbíu 2022 og Hafliði Breiðfjörð tók við hann ítarlegt viðtal.
Brentford hefur gengið frá kaupum á belgíska framherjanum Kaye Furo frá Club Brugge. Hann skrifar undir fimm og hálfs árs samning. Hann er aðeins 18 ára gamall en hann verður hluti af aðalliðinu. Brentford borgaði Club Brugge um níu milljónir punda fyrir hann.
Nikola Kristinn Stojanovic er genginn til liðs við Ægi frá Dalvík/Reyni. Hann mun því taka slaginn með Ægismönnum í Lengjudeildinni næsta sumar.
ÍA hefur fest kaup á Rafael Mána Þrastarsyni frá Fjölni en þetta staðfesta Fjölnismenn í tilkynningu á heimasíðu sinni í dag.
Ísabella Sara Tryggvadóttir er komin aftur í Val frá Rosengard en hún skrifar undir þriggja ára samning við félagið. Ísabella er fædd árið 2006 en hún gekk til liðs við Val árið 2023 frá KR. Hún hefur spilað 22 leiki fyrir liðið.
Amanda Andradóttir er gengin til liðs við norska félagið Molde en hún skrifar undir þriggja ára samning. Hún rifti samningi sínum við Twente í síðasta mánuði. Amanda er 22 ára gömul en hún fæddist í Molde. Hún var til viðtals á heimasíðu Molde eftir undirskriftina.
Keflavík hefur samið við Halid Alghoul fyrir komandi tímabil í Bestu deildinni. Halid er 23 ára gamall kantmaður og ólst upp hjá króatíska félaginu Dinamo Zagreb. Hann á leiki í efstu deildinni í Króatíu en hann lék síðast með NK Jarun Zagreb
Kristrún Ýr Holm er gengin í raðir Þrottar og mun spila með liðinu á komandi tímabili í Bestu deildinni. Hún kemur til Þróttar frá Keflavík þar sem hún hefur leikið allan sinn feril. Fótbolti.net sagði frá því í gær að Kristrún væri á leið í Þrótt. Hún er annar leikmaðurinn sem Þróttur fær í vetur, en áður hafði Björg Gunnlaugsdóttir komið frá FHL.
Jón Guðni Fjóluson hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari Breiðabliks. Hann mun aðstoða Ólaf Inga Skúlason með meistaraflokk karla. Eiður Benedikt Eiríksson og Arnór Sveinn Aðalsteinsson voru aðstoðarþjálfarar á liðnu tímabili, Eiður flutti til Akureyrar í haust og samdi við Þór og Arnór Sveinn hætti eftir tímabilið. Jón Guðni, sem er 36 ára, er fyrrum atvinnu- og landsliðsmaður sem lagði skóna á hilluna fyrir tæpu ári síðan. Hann er uppalinn hjá Ægi og kom í 3. flokki í Fram. Eftir tímabilið 2011 með Fram hélt hann út í atvinnumennsku og var erlendis í rúman áratug; lék Belgíu, Svíþjóð, Rússlandi og í Noregi. Hann lék 18 leiki í íslensku landsliðstreyjunni. Hann er með UEFA A-þjálfaragráðu og kemur til Breiðabliks eftir að hafa þjálfað yngri flokka hjá HK og stígur nú sín fyrstu skref í meistaraflokksþjálfun.
Jeppe Pedersen hefur skrifað undir tveggja ára samning við KA. Hann kemur til félagsins frá Vestra þar sem hann spilaði í eitt og hálft tímabil. Fótbolti.net sagði frá áhuga KA á leikmanninum í upphafi vikunnar. Jeppe er 24 ára danskur miðjumaður sem skoraði sigurmark Vestra í úrslitaleik Mjólkurbikarsins í ágúst. Markið var einkar glæsilegt þrumuskot fyrir utan vítateig. Markið tryggði Vestra fyrsta bikarmeistaratitilinn í sögu félagsins. Jeppe er annar leikmaðurinn sem KA fær frá Vestra í vetur því Diego Montiel gekk í raðir KA í lok nóvember. Hann var orðaður við Þór og Val fyrir áramót.
Miðvörðurinn Felix Mathaus Lima Santos hefur gert samning við Njarðvík um að leika með liðinu út árið 2026. Felix hefur spilað æfingaleiki með Njarðvík á undirbúningstímabilinu og skoraði tvennu gegn FH og eitt gegn KR. Í fréttum úr þeim leikjum var hann titlaður sem Felix Hjaltason. Hann spilaði síðast í Grikklandi, í næstefstu deild. Hann er 35 ára gamall, er frá Grænhöfðaeyjum og er einnig með portúgalskt vegabréf. Hann er annar reynslumikli miðvörðurinn sem Lengjudeildarliðið hefur fengið í vetur því Eiður Aron Sigurbjörnsson samdi við félagið í nóvember.
Kristófer Máni Sigurðsson hefur skrifað undir samning við Þór en hann kemur til félagsins frá uppeldisfélaginu Hetti. Hann er fæddur árið 2008 en hefur þrátt fyrir ungan aldur spilað 32 meistaraflokksleiki undanfarin tvö ár. Kristófer Máni er þriðji leikmaðurinn sem Þór, sem vann Lengjudeildina í fyrra, hefur fengið til sín í vetur. Í síðasta mánuði sömdu þeir Ágúst Eðvald Hlynsson og Atli Sigurjónsson við félagið.