Gabriel Jesus átti frábæran leik fyrir Arsenal í dag þegar liðið vann 4-1 sigur á Leeds.
Hann skoraði tvö mörk en þetta voru fyrstu mörkin hans í hálft ár. Þetta var aðeins þriðji leikurinn hans eftir HM þar sem hann hefur verið að kljást við meiðsli en þetta var fyrsti byrjunarliðsleikurinn í deildinni.
„Það eru allir að spila svo vel, það er auðvelt að koma til baka og spila með þeim. Ég hef alltaf átt slæman kafla á mínum ferli, ég er hérna til að læra og laga það. Ég vil skora í hverjum einasta leik en svona getur gerst. Það er mikilvægara að ná í þrjú stig en að skora mörk," sagði Jesus.
Með sigrinum endurheimti Arsenal 8 stiga forystu á toppi deildarinnar.
Athugasemdir