Fotbolti.net
08.09.26 - 18:39
Ívan Guðjón Baldursson

Meistaradeildin: Aston Villa hafði betur í Belgíu

Meistaradeildin: Aston Villa hafði betur í Belgíu
Canon

Mynd: EPA

Tveimur fyrstu leikjum dagsins er lokið í Meistaradeild Evrópu þar sem Aston Villa heimsótti belgíska stórveldið Club Brugge.
Lærlingar Unai Emery léku á alls oddi í fyrri hálfleik og leiddu 1-3 í leikhlé. John McGinn skoraði fyrsta markið eftir frábæra stoðsendingu frá Pau Torres sem hljóp meira en hálfan völlinn með boltann áður en hann gaf á McGinn.

Hugo Vetlesen jafnaði átta mínútum síðar eftir góðan undirbúning frá Jan Virgili á vinstri kanti en skömmu síðar endurheimtu gestirnir forystuna með marki frá Emiliano Buendía. Buendía, sem skorar vanalega mjög flott mörk, kláraði í þetta sinn af stuttu færi eftir frábæran undirbúning frá Joao Gomes.

Pau Torres gaf aðra stoðsendingu undir lok fyrri hálfleiks þegar hann sendi langan bolta upp völlinn á Nicolas Jackson. Yann Sommer, sem varð Ítalíumeistari með Inter á síðustu leiktíð, óð úr markinu og tapaði kapphlaupinu við Jackson, sem skoraði í opið mark.

Belgarnir minnkuðu muninn í síðari hálfleik þegar Nicoló Tresoldi skoraði af vítapunktinum eftir að Aaron Wan-Bissaka handlék boltann innan vítateigs. Þeir sóttu stíft á lokakaflanum og fengu nokkur hálffæri. Þeir komust næst því að jafna þegar þeir skölluðu boltann í stöngina eftir hornspyrnu, en tókst ekki að skora. Lokatölur urðu því 2-3 fyrir Aston Villa.

Á sama tíma hafði AEK frá Aþenu betur gegn LASK frá Linz með einu marki gegn engu. Fyrrum Serie A leikmaðurinn Razvan Marin, sem er rúmenskur landsliðsmaður, skoraði eina mark leiksins.

Club Brugge 2 - 3 Aston Villa
0-1 John McGinn ('11 )
1-1 Hugo Vetlesen ('19 )
1-2 Emiliano Buendia ('22 )
1-3 Nicolas Jackson ('43 )
2-3 Nicolo Tresoldi ('61 , víti)

AEK 1 - 0 LASK Linz
1-0 Razvan Marin ('21 )
Meistaradeildin: Aston Villa hafði betur í Belgíu
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.