Fotbolti.net
08.09.26 - 17:30
Elvar Geir Magnússon
Ítalski boltinn

Diogo Leite orðinn samherji Alberts (Staðfest)

Diogo Leite orðinn samherji Alberts (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Lazio hefur fengið portúgalska miðvörðinn Diogo Leite á frjálsri sölu.

Lazio hefur farið frábærlega af stað og er í efsta sæti ítölsku A-deildarinnar með fullt hús eftir þrjá leiki en Albert Guðmundsson skoraði sigurmarkið gegn Udinese í gær, í sínum fyrsta leik fyrir félagið.

Leite var hjá þýska félaginu Union Berlin en samningur hans rann út fyrr í sumar. Hann skrifaði undir tveggja ára samning með möguleika á 12 mánaða framlengingu á Ólympíuleikvangnum.

Leite er 27 ára og er annar miðvörðurinn sem Lazio fær á frjálsri sölu frá Union Berlin því áður hafði Danilho Doekhi komið. Þeir tveir þekkjast því ansi vel og hafa spilað 108 mótsleiki saman.

Serie A - karlar

#LiðLmunStig
1Lazio8+1122
2Inter7+1219
3Roma8+1318
4Como8+717
5Milan7+715
6Frosinone7+413
7Torino8+213
8Cagliari8-313
9Napoli8+311
10Juventus7+111
11Atalanta7-19
12Lecce7-39
13Bologna8-28
14Sassuolo8-48
15Monza8-37
16Udinese7-74
17Genoa7-84
18Fiorentina7-94
19Parma8-104
20Venezia7-103
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.