Fotbolti.net
08.09.26 - 18:08
Ívan Guðjón Baldursson
Byrjunarliðsfréttir

Byrjunarliðin í Meistaradeildinni: Bouaddi byrjar - Trent á miðjunni

Byrjunarliðin í Meistaradeildinni: Bouaddi byrjar - Trent á miðjunni
Canon

Mynd: Manchester City

Fjórir leikir hefjast á sama tíma í deildarkeppni Meistaradeildarinnar og hafa byrjunarliðin verið tilkynnt.
Manchester City heimsækir Portúgalsmeistara Porto í spennandi slag þar sem Enzo Maresca þjálfari gerir þrjár breytingar á byrjunarliðinu sem vann 1-0 gegn Coventry City í ensku úrvalsdeildinni um helgina.

Matheus Nunes kemur inn í hægri bakvarðarstöðuna fyrir Abdukodir Khusanov, ungstirnið Ayyoub Bouaddi kemur inn á miðjuna fyrir Elliot Anderson og Phil Foden byrjar á kantinum fyrir Iliman Ndiaye.

Spænska stórveldið Real Madrid tekur á sama tíma á móti Ítalíumeisturum Inter í gríðarlega spennandi stórleik. José Mourinho er að glíma við meiðslavandræði og því byrjar Trent Alexander-Arnold á miðjunni ásamt fyrirliðanum Federico Valverde og stórstjörnunni Jude Bellingham.

Kylian Mbappé, Brahim Díaz og Vinícius Júnior leiða sóknarlínuna og eru Yan Diomande, Endrick og Carlos Espí meðal varamanna.

Curtis Jones er þá í byrjunarliði Inter og byrjar John Stones á bekknum ásamt Manuel Akanji.

Hákon Arnar Haraldsson er á sínum stað í byrjunarliði Lille sem tekur á móti Real Betis. Hákon er partur af tilraunakenndri sóknarlínu sem inniheldur einnig Ethan Mbappé, Gaëtan Perrin og Ayase Ueda.

Antony, Isco og Troy Parrott eru meðal byrjunarliðsmanna gestaliðsins frá Sevilla, ásamt fyrrum úrvalsdeildarleikmönnunum Héctor Bellerín, Junior Firpo og Pablo Fornals.

Að lokum eigast Borussia Dortmund og Villarreal við. Þar er táningurinn Konstantinos Karetsas í byrjunarliði heimamanna.



Porto: D.Costa; Varela, Perez, Kiwior, A.Costa; Rosario, M.Fernandes, Veiga; Gomes, A.Silva, Pepe
Varamenn: C.Ramos, J.Costa, Hwang, Sainz, Gimenez, Souza, Fofana, D.Cunha, T.Silva, L.Gomes, Moura

Man City: Donnarumma; Nunes, Dias, Guehi Gvardiol; Bouaddi, Fernandez, Cherki; Foden, Semenyo, Haaland
Varamenn: Bettinelli, Rulli, Anderson, Ndiaye, Kovacic, Ait-Nouri, Reis, Allan, Khusanov, McAidoo, Lewis



Real Madrid: Courtois, Dumfries, Konate, Huijsen, Cucurella, Alexander-Arnold, Valverde, Bellingham, B.Diaz, Vinicius, Mbappe
Varamenn: Carreras, Cestero, Diomande, Endrick, Espi, Lunin, Mestre, Pitarch, Rivas, Rudiger, Tchouameni

Inter: J.Martinez, Pavard, Bisseck, Bastoni, Diouf, C.Augusto, Barella, C.Jones, Calhanoglu, Thuram, L.Martinez
Varamenn: Akanji, Bonny, Di Gennaro, Esposito, Henrique, Mkhitaryan, Provedel, Stankovic, Stones, Sucic, Zielinski



Lille: Özer, Santos, Ngoy, Alexsandro, Perraud, Andre, Bentaleb, Perrin, Mbappe, Haraldsson, Ueda

Real Betis: Valles, Bellerin, Bartra, Natan, Firpo, Bernal, Fornals, Isco, Antony, Riquelme, Parrott



Dortmund: Köbel, Gadou, Anton, Svensson, Ryerson, Veerman, Sabitzer, Beier, Karetsas, Nmecha, Guirassy

Villarreal: Gulacsi, Mourino, Navarro, Veiga, Cardona, Buchanan, Gueye, Saliba, Comesana, Oluwaseyi, Mikautadze
Byrjunarliðin í Meistaradeildinni: Bouaddi byrjar - Trent á miðjunni
Canon

Mynd: EPA

Byrjunarliðin í Meistaradeildinni: Bouaddi byrjar - Trent á miðjunni
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.