Fotbolti.net
08.09.26 - 17:56
Ívan Guðjón Baldursson

Skildi nýju mennina utan hóps: Verða að bæta sig

Skildi nýju mennina utan hóps: Verða að bæta sig
Canon

Mynd: EPA

Pierre Sage þjálfari Crystal Palace segir að nýju leikmenn liðsins Dwight McNeil og Evann Guessand þurfi að bæta sig eftir að hann skildi þá utan hóps í sigri gegn Fulham um helgina.
Palace heimsótti Fulham í Lundúnaslag og hafði betur í fjörugum fimm marka leik, en liðið hafði tapað fyrstu tveimur úrvalsdeildarleikjum tímabilsins fyrir sigurinn á Craven Cottage.

Guessand og McNeil komu báðir við sögu í fyrstu tveimur deildarleikjunum. Bakverðirnir Tyrick Mitchell og Ben Chilwell sáu um markaskorunina gegn Fulham.

„Þetta er mín ákvörðun. Stundum þarf að stuða leikmenn til þess að koma þeim í gang. Þegar allt kemur til alls þá er þetta bara einn leikur, sem við unnum. Þeir þurfa að taka þessu og standa sig betur á æfingum til þess að komast inn í liðið. Kannski verða þeir með okkur í bikarnum," sagði Sage, en Palace tekur á móti Championship-liði Middlesbrough í deildabikarnum í kvöld.

„Ég mun þurfa að skipta einhverjum leikmönnum út á milli leikja. Strákarnir lögðu allt í sölurnar um helgina."

Guessand og McNeil byrja á bekknum gegn Middlesbrough.
Skildi nýju mennina utan hóps: Verða að bæta sig
Canon

Mynd: Crystal Palace

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City8+1121
2Arsenal8+821
3Brighton7+1816
4Chelsea7+413
5Liverpool7+112
6Aston Villa8-311
7Brentford7+510
8Leeds7+310
9Everton8-110
10Ipswich Town8-410
11Hull City7+19
12Fulham8-28
13Newcastle7-48
14Man Utd707
15Crystal Palace7-87
16Bournemouth7-46
17Tottenham7-46
18Nott. Forest8-46
19Coventry8-96
20Sunderland7-84
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.