08.09.26 - 22:16
Ívan Guðjón Baldursson
Haaland um Bouaddi: Búnir að finna alvöru demant

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Erling Haaland skoraði bæði mörkin og var besti leikmaður vallarins er Manchester City lagði Portúgalsmeistara FC Porto að velli í fyrstu umferð deildarkeppni Meistaradeildarinnar.
Haaland tjáði sig í viðtali að leikslokum og hrósaði táningnum Ayyoub Bouaddi í hástert. Bouaddi er 18 ára gamall og átti frábæran leik á miðjunni hjá Man City.
„Þetta var mjög erfiður leikur, þeir spiluðu maður á mann og sýndu mikil gæði. Þeir spila frábæran fótbolta en við verðskulduðum sigurinn. Þeir gerðu þetta óþægilegt fyrir okkur á köflum en við sköpuðum urmul færa og ég hefði auðveldlega getað skorað fleiri mörk. Við vörðumst vel þegar þeir reyndu að jafna eftir opnunarmarkið," sagði Haaland.
„Hann (Bouaddi) var frábær í dag. Hann hefur verið frábær á æfingum og ég held að við séum búnir að finna alvöru demant hérna. Hann spilaði mjög góðan leik nema á einum tímapunkti þegar hann sendi boltann ekki á mig. Ég hefði verið kominn einn í gegn og mun eiga við hann orð um þetta," hélt Norðmaðurinn skemmtilegi áfram og glotti.

TENGT EFNI